Hlökk frá Strandarhöfði efst eftir forkeppni í fjórgang

25. júní 2025

Nú stendur yfir Íslandsmót í hestaíþróttum á Brávöllum, Selfossi.  Mótið hófst á keppni í fjórgangi.

 Margar glæsilegar sýningar áttu sér stað, en enginn skákaði hinu glæsilega pari Ásmundi Erni og Hlökk frá Strandarhöfði sem fengu 7,90 í einkunn.  Það er önnur hæsta einkunn sem gefin hefur verið á WR móti á árinu og töluverð bæting hjá þeim en áður var þeirra besti árangur í forkeppni 7,63. Hæst hefur hún farið í 8,73 í úrslitum en það var þegar hún tryggði sér sigur í fjórgangi á Reykjarvíkurmeistaramóti Fáks á dögunum.


Jakob Svavar og Skarpur frá Kýrholti voru með næst hæstu einkunn 7,77  en þeir eiga þó sem stendur hæstu einkunn fyrir forkeppni á árinu 7,97 og rétt á hæla þeirra voru þeir Árni Björn og Kriki frá Kirka með 7,70. Til úrslita mæta einnig þau Aðalheiður Anna og Hulinn frá Breiðastöðum og Guðmunda Ellen og Flaumur frá Fákshólum en bæði þessi pör hlutu 7,47 í einkunn.


Til B úrslita mæta Helga Una og Ósk frá Stað, Gústaf Ásgeir og Assa frá Miðhúsum, Þorgeir og Auðlind frá Þjórsárbakka, Sara og Fluga frá Oddhól og Barbara og Loftur frá Kálfsstöðum.


Úrslit í fjórgangi fara fram á sunnudaginn og verður hægt að fylgjast með þeim í beinni útsendingu á RÚV.


Allt mótið er í beinu streymi á Eiðfaxa TV og allar niðurstöður birtast í rauntíma í Horseday appinu.


Framundan í dag er svo ungmennaflokkur fjórgangur og hefst það klukkan 15:30. Fyrsta kvöldi Íslandsmóts lýkur svo á keppni í gæðingaskeiði.


Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Lesa meira