Íslandsmeistarar gæðingaskeiði og skeiðkappreiðum krýndir

19. júní 2026

Fyrstu Íslandsmeistarnir hafa verið krýndir á Íslandsmótinu sem fram fer á Sörlastöðum í Hafnarfirði.

Í gæðingaskeiði meistara mátti sjá margar frábærar sýningar en það var  Árni Björn Pálsson sem stóð uppi sem Íslandsmeistari á gæðingshryssunni Elmu frá Staðarhofi með einkunnina 9,04.

Í öðru sæti varð Haukur Baldvinsson á Andvara frá Kerhóli með 8,79 og Elvar Þormarsson varð þriðji á Elektru frá Engjavatni með 8,75.


Í gæðingaskeiði ungmennaflokki urðu Guðný Dís Jónsdóttir og Erla frá Feti Íslandsmeistarar með einkunnina 7,83. Matthías Sigurðsson og Gammur fá Efri-Þverá urðu í öðru sæti og í því þriðja urðu Lilja Rún Sigurjónsdóttir og Heiða frá Skák.


Í 250 m. skeiði í meistaraflokki var mjótt á mununum en Páll Bragi Hólmarsson og Snjall frá Austurkoti voru fljótastir allra og hömpuðu Íslandsmeistaratitli á tímanum 22,35 sek. Í öðru sæti urðu Árni Björn Pálsson og Þokki frá Varmalandi á 22,36 sek. og Hanne Oustad Smidesang og Vinátta frá Árgerði í því þriðja á 22,42 sek.


Í 250m. skeiði ungmenna var aðeins einn keppandi, Sara Dís Snorradóttir á Djarfi frá Litla-Hofi og urðu þau Íslandsmeistarar, en þau fóru á frábærum tíma, 22,75 sek sem hefði dugað í 5. sæti í fullorðinsflokki.


Í 150m skeiði í meistaraflokki urðu Teitur Árnason og Hátíð frá Sumarliðabæ 2 Íslandsmeistarar á frábærum tíma, 13,88 sek. Í öðru sæti urðu Íslandsmeistararnir frá því í fyrra, Hans Þór Hilmarsson og Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði á 14,03 sek. og í þriðja sæti urðu Íslandsmeistarar ársins 2024, Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II á 14,10 sek.


Í 150m skeiði ungmenna var hörð barátta en Sigurður Steingrímsson stóð uppi sem Íslandsmeistari á Gjafari frá Hrafnsstöðum en þeir fóru sprettinn á 14,94 sek. Í öðru sæti urðu Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal og Alviðra frá Kagaðarhóli á 14,95 sek. og í þriðja sæti urðu Guðrún Lilja Rúnarsdóttir og Kári frá Morastöðum á 14,97 sek.


Við óskum Íslandsmeisturum til hamingju með titilinn!


Fréttasafn

31. október 2026
Ný stjórn LH kjörin á Landsþingi
31. október 2026
Ragnhildur Gísladóttir dregur framboð til aðalstjórnar til baka
31. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Þórhildur Katrín Stefánsdóttir – Hestamannafélagið Hornfirðingur
30. október 2026
Eftirfarandi framboð til varastjórnar bárust kjörnefnd
29. október 2026
Valnefnd óskar eftir keppnisárangri ræktunarbúa
29. október 2026
Framboð í varastjórn LH 2026 – 2028 Hilmar Guðmannsson – Hestamannafélagið Fákur
29. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Ragnhildur Gísladóttir – Hestamannafélagið Ljúfur
28. október 2026
Framboð í varastjórn LH 2026 – 2028 Reynir Atli Jónsson – Hestamannafélagið Freyfaxi
27. október 2026
Hugrenningar formanns LH, Lindu B. Gunnlaugsdóttur
27. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Jón Þorberg Steindórsson – Hestamannafélagið Geysir
Lesa meira