Íslandsmót

18. nóvember 2024

This is a subtitle for your new post

Miklar breytingar á skipulagi og framkvæmd í farvatninu.


Íslandsmót barna- og unglinga, Íslandsmót ungmenna og fullorðinna ásamt Íslandsmóti í Gæðingalist.


Á ársþingi LH í októberlok voru nýjar reglugerðir um Íslandsmótin samþykktar og því eru hér með auglýst til umsóknar fyrir mótshaldara. Á þinginu var samþykkt að Íslandsmótunum skuli úthluta með þriggja ára fyrirvara.


Hestamannafélagið Sleipnir á Selfossi hefur þegar fengið Íslandsmóti ungmenna og fullorðinna árið 2025 úthlutað og mun mótið fara fram á Brávöllum á Selfossi dagana 26-29 júní.

Einnig var það samþykkt að keppni í gæðingakeppnisgreinum skuli vera með á Íslandsmóti barna- og unglinga og því verða krýndir Íslandsmeistarar í gæðingakeppni í þessum flokkum á mótinu. Þingið samþykkti einnig að sérstakt Íslandsmót í Gæðingalist skuli haldið á vordögum og Íslandsmeistarar krýndir í þeirri grein á sérstöku móti þegar innanhússmótatímabilið er í fullum gangi, eða fyrir 15 maí.


Áhugamannamót Íslands fékk rýmri ramma um flokkaskiptingar og reglur um þátttöku á mótum sem eru til þess fallnar að auka þátttöku á mótinu og gera mótshöldurum léttara fyrir við að halda glæsilegt áhugamannamót.


Mót sem auglýst eru til umsóknar eru því eftirfarandi mót (í tímaröð), og skulu umsóknir berast fyrir 15. Desember næstkomandi og verður mótunum úthlutað mótshöldurum í kjölfarið.


  • Íslandsmót í Gæðingalist 2025
  • Íslandsmót barna- og unglinga 2025
  • Áhugamannamót Íslands 2025
  • Íslandsmót barna- og unglinga 2026
  • Íslandsmót ungmenna- og fullorðinna 2026
  • Íslandsmót ungmenna og fullorðinna 2027
  • Íslandsmót barna og unglinga 2027

Frekari útlistun á reglugerðum þessara móta og framkvæmd þeirra verður sett fram í frétt á vef LH og öðrum miðlum ásamt ýmsum fróðleik um þær breytingar sem þingið í október samþykkti á næstu vikum.


Landssamband hestamannafélaga hvetur áhugasama mótshaldara Íslandsmóta næstu ára, Íslandsmóts í gæðingalist og Áhugamannamóts Íslands til þess að senda inn umsóknir á lh@lhhestar.is og taka þátt í því að gera þessum frábæru mótum hátt undir höfði. Frekari upplýsingar má nálgast á skrifstofu LH

 


Fréttasafn

16. nóvember 2026
Styttist í uppskeruhátíð
13. nóvember 2026
Hestamannafélagið Sleipnir mun halda Íslandsmót fullorðinna og ungmenna 16.-20. júní 2027
11. nóvember 2026
Allir í Samskipahöllina annað kvöld
10. nóvember 2026
Knapar ársins verða heiðraðir á Uppskeruhátíð hestafólks
6. nóvember 2026
Heiðursviðurkenningar ÍSÍ veittar á Landsþingi LH
5. nóvember 2026
Gullmerki veitt á Landsþingi
3. nóvember 2026
Könnun til félagsmanna
2. nóvember 2026
Að loknu hverju landsþingi skipar stjórn Landssambands hestamannafélaga í nefndir sambandsins til tveggja ára. Nefndarstörf eru undirstaðan í öllu starfi LH og mikilvægt að fá öfluga sjálfboðaliða sem eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum. Nefndastarf á vegum LH er skemmtilegt og fræðandi, auk þess sem störf í nefndum eru gefandi og til þess fallin að efla tengslanet nefndafólks. Ef þú ert tilbúin/n til að starfa í nefnd hjá LH þá sækir þú um á sértöku umsóknareyðublaði . Frestur til að gefa kost á sér í nefndastörf LH er 20. nóvember. Nefndirnar sem um ræðir eru: Keppnisnefnd Keppnisnefnd fjallar um mál sem stjórn LH vísar til hennar en hefur að öðru leyti frumkvæðisrétt að málefnum sem undir hana heyra. Hlutverk nefndarinnar er að bæta reglur er viðkoma keppni í hestamennsku, þannig að þær séu einfaldar, skiljanlegar og skýrar. Laganefnd Hlutverk nefndarinnar er að að bæta regluverk LH, þannig að það sé einfalt, skiljanlegt og skýrt og vera stjórn til ráðgjafar er varðar túlkun á lögum og reglum LH. Nefndin sér einnig um að breytingar á lögum og reglum sem samþykktar eru á FEIF-þingi og landsþingi LH séu rétt færð inn í lög og reglur LH og fara yfir tillögur til landsþings. Landsliðs- og afreksnefnd Hlutverk landsliðs- og afreksnefndar er að móta umgjörð um afreksmál LH og halda utan um landsliðshópa og hæfileikamótun LH. Nefndin er einnig fjáröflunarnefnd fyrir afreksstarf LH. Nefndin skipuleggur landsliðsferðir og fylgir eftir landsliðum Íslands í hestaíþróttum á HM og NM. Mannvirkjanefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera ráðgefandi varðandi gerð og notkun mannvirkja á hestaíþróttasvæðum hestamannafélaganna. Einnig ber nefndinni að vera stjórn innan handar varðandi lágmarkskröfur sem gerðar eru til mótshaldara Íslandsmóta og Landsmóta hvað varðar aðstæður á mótssvæði. Menntanefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera sérfræðilegur ráðunautur sambandsstjórnar LH í öllum málefnum er varða fræðslu og menntun. Nefndin heldur utan um endurmenntunarnámskeið fyrir reiðkennara og staðfestir virka reiðkennara til FEIF. Annað hvert ár stendur nefndin fyrir endurmenntunarráðstefnu. Tölvunefnd Hlutverk nefndarinnar er að tryggja aðgengi aðildarfélaga LH að framúrskarandi forriti sem reiknar út niðurstöður móta og birtir niðurstöður á aðgengilegan hátt. Nefndin stuðlar að þróun mótaforrits í samræmi við kröfur samtímans. Úrskurðar- og aganefnd Úrskurðar- og aganefnd LH skal skipuð þremur aðalmönnum og tveimur til vara, formaður skal vera löglærður. Úrskurðar- og aganefnd úrskurðar um brot á lögum, reglugerðum og reglum LH og ákvarðar viðurlög, í samræmi við reglur Úrskurðar- og aganefndar. Æskulýðsnefnd Hlutverk Æskulýðsnefndar er að efla fræðslu um æskulýðsmál, gæta hagsmuna og jafnræðis æskunnar í íþróttinni, auka fræðslu æskulýðsfulltrúa um allt land og styðja við þá í starfi. Nefndin sér einnig um val þátttakenda á FEIF Youth Cup og Youth Camp. Útbreiðslu- og nýliðunarnefnd Hlutverk nefndarinnar er að vinna að útbreiðslu og kynningu á hestaíþróttum og stuðla að jákvæðri ímynd hestaíþrótta. Nefndinni er einnig ætlað að vinna að aukinni útbreiðslu og umfjöllun um hestaíþróttir. Öryggisnefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera vakandi yfir því sem varðar öryggi hestafólks hvort sem er í búnaði hestafólks eða umhverfi hestaíþrótta. Nefndin stuðlar að öryggi á reiðvegum og annars staðar þar sem hestamennska er stunduð og sér um að fræða hinn almenna hestamann um hvernig hægt er að bæta öryggi í nærumhverfi. Ef þú ert tilbúin til að starfa í nefnd hjá LH þá sækir þú um með því að smella hér .
31. október 2026
Ný stjórn LH kjörin á Landsþingi
31. október 2026
Ragnhildur Gísladóttir dregur framboð til aðalstjórnar til baka
Lesa meira