Íslandsmót fullorðinna og ungmenna í hestaíþróttum 2024

26. júní 2024

Íslandsmót fullorðinna og ungmenna í hestaíþróttum verður haldið í Víðdal í sumar, það er Hestamannafélagið Fákur sem heldur mótið dagana 24.júlí – 28.júlí. Þátttökurétt eiga þau pör sem hafa náð lágmörkum í hverri grein á þessu ári ekki síðar en 17. júlí en þá lýkur skráningu á mótið.

Pör sem náð hafa lágmörkum í hringvallagreinum í fullorðinsflokki og ungmennaflokki hafa heimild til að taka þátt á mótinu. Lágmörk gilda einnig í skeiðgreinum, 100m, 150m, 250m og gæðingaskeiði. Í Gæðingalist eru það fyrir 15 sem skrá sig.

Víðidalurinn mun án efa skarta sínu fegursta og það verður spennandi að fylgjast með bestu hestum og knöpum landsins etja þar kappi.

Skráning er hafin og lýkur 17 júlí kl 23:59. Skráningagjald í hverja grein eru 15.000kr. Skráning fer fram í sportfeng og velja þar Fák sem mótshaldara.

 

Þau lágmörk sem pör skulu hafa náð eru eftirfarandi;

F1 – Fullorðnir 6,80

F1 – Ungmenni 6,10

V1 – Fullorðnir 7,00

V1 – Ungmenni. 6,50

T1 - Fullorðnir. 7,40

T1 – Ungmenni. 6,60

T2 - Fullorðnir. 7,00

T2 - Ungmenni 6,20

PP1 – Fullorðnir 7,10

PP1 – Ungmenni 5,90

P2 100m – Fullorðnir 8,0 sek

P2 100m – Ungmenni 9,0 sek

P3 150m – Opinn flokkur 15,40 sek

P3 1500m - Ungmenni 17,00 sek

P1 250m - Opinn flokkur 24,80 sek

P1 250m – ungmenni 26,00 sek

Gæðingalist – Fullorðnir – Fyrstu 15 sem skrá.

Gæðingalist – Ungmenni – Fyrstu 15 sem skrá.

Fréttasafn

10. september 2025
Dagana 21. til 23. nóvember nk. verður haldið leiðtoganámskeið FEIF sem ætlað er ungmennum á aldrinum 18-26 ára. Námskeiðið er á vegum Danska Íslandshestasambandsins (DI) og er haldið í Gringdsted Landbúnaðarskólanum í Billund í Danmörku. Yfirskrift námskeiðsins er „Fighting Fit – Conflict, Fitness & Teamwork in Action“ og markmiðið er að hvetja ungmenni til að taka þátt í félagsstörfum í hestamennsku og að þátttakendur efli færni sína sem leiðtogar. Aðalfyrirlesarar verða Rebekka Hyldgaard, sjúkraþjálfari, sem fjallar um hvernig líkamsþjálfun getur bætt árangur í reiðmennsku, og Professor Janne Winther Christensen frá Aarhus University sem fjallar um nýjustu rannsóknir um „ animal conflict behaviour “. Þátttaka í viðburði sem þessum gefur frábæra reynslu, skapar tengsl og styrkir þátttakendur til frekari leiðtoga og ábyrgðarstarfa innan hestamannafélaganna. Við hvetjum hestamannafélögin til að hvetja fulltrúa sína til þátttöku á þessu námskeiði og minnum á mikilvægi þess að efla ungt fólk til þátttöku í nefndum og störfum innan félaganna til að efla nýliðun ásamt því að móta leiðtoga framtíðarinnar. Nánari upplýsingar um námskeiðið má finna á heimasíðu FEIF. Umsóknarfrestur er 15. október 2025 . Námskeiðið hefst föstudaginn 21. nóvember kl 16:00 og endar sunnudaginn 23. nóvember kl 13:00. Kostnaður er 200€ og innifalið í því er gisting, matur og fræðsla.
10. september 2025
Landssamband hestamannafélaga auglýsir til umsóknar eftirfarandi mót: · Íslandsmót fullorðinna og ungmenna 2028 · Íslandsmót barna og unglinga 2028 · Íslandsmót í gæðingalist 2026 (innanhússmót sem haldið skal fyrir 15. maí) · Áhugamannamót Íslands 2026 Dagsetningar mótanna eru ákveðnar í samráði við mótshaldara og að teknu tilliti til dagsetninga annarra móta. Á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna er keppt í íþróttakeppni í efsta styrkleikaflokki þar sem keppendur eru einir inni á vellinum í einu. Á Íslandsmóti barna og unglinga er keppt í íþróttakeppni og gæðingakeppni. Á Íslandsmóti í gæðingalist er keppt í öllum aldursflokkum og skal mótið haldið fyrir 15. maí 2026. Á Áhugamannamóti Íslands er keppt í íþróttakeppni og gæðingakeppni í 1., 2. og 3. flokki. Umsóknir áhugasamra mótshaldara skulu berast Landssambandi hestamannafélaga fyrir 1. október nk. á netfangið lh@lhhestar.is .
14. ágúst 2025
Hörður Hákonarson hestamaður og alþjóðlegur hestaíþróttadómari í Reykjavík er látinn.
13. ágúst 2025
Til hamingju Ísland með frábært landslið
13. ágúst 2025
Úrslit í fjórgangi & fimmgangi
10. ágúst 2025
Þvílíkur morgunn!!!
10. ágúst 2025
Þá eru B-úrslitum lokið og ljóst hvaða keppendur bæta sér í toppbaráttuna í hverjum flokki.
10. ágúst 2025
Kristján Árni tvöfaldur heimsmeistari
9. ágúst 2025
Kristján Árni - Heimsmeistari
8. ágúst 2025
Niðurstöður úr kynbótasýningum sjö vetra og eldri hrossa
Lesa meira