Lágmörk á Íslandsmót fullorðinna og ungmenna

8. febrúar 2023

Á ársþingi 2022 var ný reglugerð um Íslandsmót samþykkt og Íslandsmóti 2023 hefur þegar verið úthlutað til hestamannafélagsins Sleipnis á Selfossi.

Ein af þeim breytingum sem urðu á framkvæmd Íslandsmót er að í stað stöðulista voru tekin upp einkunnalágmörk í greinarnar sem þurfa að nást á keppnisárinu fram að Íslandsmóti.

Keppnisnefnd LH hefur nú gefið út lágmörkin sem gilda fyrir Íslandsmót 2023 og eru þau reiknuð með tilliti til meðaltals síðustu tveggja keppnisára. Horft er til þess að keppendafjöldi sé svipaður og á undanförnum teimur Íslandsmótum.

Stöðulistar í 150 m og 250 m skeiði í ungmennaflokki eru ekki marktækir og því voru lágmörk ákveðin sérstaklega í þeim greinum..

Boðið verður upp á Gæðingalist á Íslandsmóti, en nú á fyrsta ári er ekki forsenda fyrir því að setja upp lágmarkseinkunnir í þeirri grein og því er að þessu sinni settur hámarksfjöldi þátttakenda í hvorum flokki um sig.

 

 

Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Lesa meira