Vilt þú ná þér í Þjálfarastig LH?

3. febrúar 2023

Hvað er Þjálfarastig LH?

Þjálfarastig LH eru nám þar sem hægt er að öðlast færni til þjálfunar og kennslu í hestaíþróttum. Til að ná Þjálfarastigum LH þarf að ljúka knapamerkjaprófum og þjálfaramenntun ÍSÍ í fjarnámi.

Þjálfaramenntun ÍSÍ er í boði þrisvar á ári, þ.e. sumar-, haust, - og vorfjarnám . Námið tekur átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. LH auglýsir skráningu í þjálfaramenntun ÍSÍ hverju sinni áður en námskeið hefst með góðum fyrirvara. Næsta námskeið hefst 6. febrúar og má sjá hér.

Knapamerki : Hestamannafélögin auglýsa knapamerkjanámskeið hverju sinni og hægt er að fá upplýsingar um þau hjá þínu hestamannafélagi. Hægt er að sjá fleiri upplýsingar um knapamerkin hér http://knapamerki.is/

Þjálfarastig LH

Til að ná sér í Þjálfarastig 1 þarf að ljúka knapamerkjaprófum 1-3 og hafa umgengist hesta í amk 2 ár áður en nám hefst. Taka þarf 1. stig í þjálfaramenntun ÍSÍ. Aldurstakmark er 16 ára.

Til að ná sér í Þjálfarastig 2 þarf að ljúka knapamerki 4 og hafa amk 3ja ára reynslu af útreiðum og hirðingum hesta. Taka þarf 2. stig í þjálfaramenntun ÍSÍ. Auk þess þarf að taka a.m.k 8 tíma skyndihjálparnámskeið. Aldurstakmarkið er 18 ára.

Til að ná sér í Þjálfarastig 3 þarf að ljúka knapamerki 5 og hafa a.m.k fjögurra ára reynslu af þjálfun mismunandi hestgerða. Taka þarf 3. stig í þjálfaramenntun ÍSÍ. Auk þess þarf að taka a.m.k 20 tíma á  skyndihjálparnámskeiði. Aldurstakmarkið er 20 ára.

Nemandi sem lýkur námi í Þjálfarastigi 3 öðlast færni við að aðstoða/kenna grunnatriði reiðmennskunnar og aðstoða við þjálfun reiðhesta.  Að ljúka Þjálfarastigi 3 er sambærilegt við Level 1 hjá FEIF -Alþjóðasamtökum íslenska hestsins. Nemendur sem útsrifast með BSc í reiðmennsku og reiðkennslu frá Hólum öðlast þessi réttindi eftir fyrsta árið á Hólum. 

Gaman er að segja frá því að Anna Björk Ólafsdóttir í Sörla er fyrst til að ljúka þessu námi og óskum við henni til hamingju með það!

Fréttasafn

10. september 2025
Dagana 21. til 23. nóvember nk. verður haldið leiðtoganámskeið FEIF sem ætlað er ungmennum á aldrinum 18-26 ára. Námskeiðið er á vegum Danska Íslandshestasambandsins (DI) og er haldið í Gringdsted Landbúnaðarskólanum í Billund í Danmörku. Yfirskrift námskeiðsins er „Fighting Fit – Conflict, Fitness & Teamwork in Action“ og markmiðið er að hvetja ungmenni til að taka þátt í félagsstörfum í hestamennsku og að þátttakendur efli færni sína sem leiðtogar. Aðalfyrirlesarar verða Rebekka Hyldgaard, sjúkraþjálfari, sem fjallar um hvernig líkamsþjálfun getur bætt árangur í reiðmennsku, og Professor Janne Winther Christensen frá Aarhus University sem fjallar um nýjustu rannsóknir um „ animal conflict behaviour “. Þátttaka í viðburði sem þessum gefur frábæra reynslu, skapar tengsl og styrkir þátttakendur til frekari leiðtoga og ábyrgðarstarfa innan hestamannafélaganna. Við hvetjum hestamannafélögin til að hvetja fulltrúa sína til þátttöku á þessu námskeiði og minnum á mikilvægi þess að efla ungt fólk til þátttöku í nefndum og störfum innan félaganna til að efla nýliðun ásamt því að móta leiðtoga framtíðarinnar. Nánari upplýsingar um námskeiðið má finna á heimasíðu FEIF. Umsóknarfrestur er 15. október 2025 . Námskeiðið hefst föstudaginn 21. nóvember kl 16:00 og endar sunnudaginn 23. nóvember kl 13:00. Kostnaður er 200€ og innifalið í því er gisting, matur og fræðsla.
10. september 2025
Landssamband hestamannafélaga auglýsir til umsóknar eftirfarandi mót: · Íslandsmót fullorðinna og ungmenna 2028 · Íslandsmót barna og unglinga 2028 · Íslandsmót í gæðingalist 2026 (innanhússmót sem haldið skal fyrir 15. maí) · Áhugamannamót Íslands 2026 Dagsetningar mótanna eru ákveðnar í samráði við mótshaldara og að teknu tilliti til dagsetninga annarra móta. Á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna er keppt í íþróttakeppni í efsta styrkleikaflokki þar sem keppendur eru einir inni á vellinum í einu. Á Íslandsmóti barna og unglinga er keppt í íþróttakeppni og gæðingakeppni. Á Íslandsmóti í gæðingalist er keppt í öllum aldursflokkum og skal mótið haldið fyrir 15. maí 2026. Á Áhugamannamóti Íslands er keppt í íþróttakeppni og gæðingakeppni í 1., 2. og 3. flokki. Umsóknir áhugasamra mótshaldara skulu berast Landssambandi hestamannafélaga fyrir 1. október nk. á netfangið lh@lhhestar.is .
14. ágúst 2025
Hörður Hákonarson hestamaður og alþjóðlegur hestaíþróttadómari í Reykjavík er látinn.
13. ágúst 2025
Til hamingju Ísland með frábært landslið
13. ágúst 2025
Úrslit í fjórgangi & fimmgangi
10. ágúst 2025
Þvílíkur morgunn!!!
10. ágúst 2025
Þá eru B-úrslitum lokið og ljóst hvaða keppendur bæta sér í toppbaráttuna í hverjum flokki.
10. ágúst 2025
Kristján Árni tvöfaldur heimsmeistari
9. ágúst 2025
Kristján Árni - Heimsmeistari
8. ágúst 2025
Niðurstöður úr kynbótasýningum sjö vetra og eldri hrossa
Lesa meira