Lágmörk á Íslandsmót fullorðinna og ungmenna 2026

10. mars 2026

Keppnisnefnd LH hefur samþykkt lágmörk fyrir Íslandsmót 2026 

Keppnisnefnd LH hefur samþykkt lágmörk fyrir Íslandsmót 2026 sem haldið verður í Hafnarfirði 17.-21. júní. Lágmörkin haldast að þessu sinni að mestu óbreytt frá fyrra ári og við ákvörðunina er horft er til þess að keppendafjöldi sé svipaður og á undanförnum teimur Íslandsmótum. Undantekning eru þó tímar í 150m og 250m. skeiði í fullorðinsflokki sem eru rýmkaðir sökum þess að mótið er haldið fyrr í árinu en áður.

Lágmörkum inn á mótið þarf að ná á þessu keppnisári í löglegu utanhússmóti.


Lágmörk á Íslandsmót 2026 eru sem hér segir: 



F1 Fimmgangur

Fullorðnir 6.80

Ungmenni 6.10

V1 Fjórgangur

Fullorðnir 7.00

Ungmenni 6.50

T1 Tölt

Fullorðnir 7.40

Ungmenni 6.60

T2 Slaktaumatölt

Fullorðnir 7.00

Ungmenni 6.20

PP1 Gæðingaskeið

Fullorðnir 7.10

Ungmenni 5.90

P2 100 m skeið

Fullorðnir 8.00 sek

Ungmenni 9.00 sek

P3 150 m skeið

Opinn flokkur 16.00 sek

Ungmenni 17.00 sek

P1 250 m skeið

Opinn flokkur 25.00 sek

Ungmenni 26.00 sek



Fréttasafn

19. október 2026
Kjörne fnd birtir lista yfir þá sem gefa kost á sér til stjórnarsetu LH næstu tvö árin. Framboðsfrestur var til föstudags 16. október sl. Stjórn LH fer með æðsta vald í málefnum sambandsins milli þinga. Stjórnin skal skipuð sjö mönnum, formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum. Varastjórn skal skipuð fimm mönnum. Kjörtímabil er til tveggja ára. Framboð til stjórnar Landssambands hestamannafélaga 2026-2028 Til formanns Linda Björk Gunnlaugsdóttir, Hestamannafélaginu Spretti Til aðalstjórnar: Þórhildur Katrín Stefánsdóttir, Hestamannafélaginu Glampa Unnur Sigurpálsdóttir (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Skagfirðingi Sóley Margeirsdóttir (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Geysi Sigurbjörn Eiríksson, Hestamannafélaginu Spretti Ragnhildur Gísladóttir (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Ljúfi Ólafur Gunnarsson, Hestamannafélaginu Jökli Jón Þorberg Steindórsson (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Geysi Til varastjórnar Reynir Atli Jónsson, Hestamannafélaginu Freyfaxa Hilmar Guðmannsson, Hestamannafélaginu Fáki Skv. gr. 4.6 í lögum LH er kjörnefnd heimilt að samþykkja framboð sem koma fram eftir að framboðsfresti lýkur, enda hafi ekki komið fram nægur fjöldi frambjóðenda. Nú háttar svo til að ekki hafa jafn margir boðið sig fram í varastjórn og kjósa skal og er því opið fyrir framboð í varastjórn og skulu þau berast til formanns kjörnefndar á netfangið ( atli@landlogmenn.is ).
15. október 2026
Hvað er Landsmót og fyrir hverja er það?
13. október 2026
Gríðarlega sterk keppnispör í öllum greinum
8. október 2026
Hörð samkeppni um HM sæti
7. október 2026
Erlendur Árnason járningamaður verður hluti af landsliðsteyminu í fram yfir HM 2027
5. október 2026
65. landsþing LH verður haldið í Hveragerði 30. til 31. október 2026. Kjörnefnd LH vekur athygli á að þau sem hyggjast gefa kost á sér til stjórnarsetu tilkynni framboð sitt til nefndarinnar eigi síðar en tveimur vikum fyrir landsþing (sjá grein 4.6 í lögum LH). Framboðsfrestur er til miðnættis 16. október . Stjórn LH fer með æðsta vald í málefnum sambandsins milli þinga. Stjórnin skal skipuð sjö mönnum, formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum. Varastjórn skal skipuð fimm mönnum og taka þeir sæti í aðalstjórn í samræmi við atkvæðahlutfall. Kjörtímabil er til tveggja ára. Kjörgengir í stjórn eru allir félagar í hestamannafélögum sem eru aðilar að LH. Kjörnefnd hvetur þá sem áhuga hafa á að starfa í stjórn LH (stjórn eða varastjórn) að tilkynna framboð fyrir tilsettan tíma til kjörnefndar. Kjörnefnd skipa: Atli Már Ingólfsson, formaður ( atli@landlogmenn.is ) Jón Geir Sigurbjörnsson (jongeir@gmail.com) Hafrún Hlín Magnúsdóttir (hafrunhlin@gmail.com) Samkvæmt lögum LH, (grein 4.6 Kosning stjórnar), birtir kjörnefnd hér lista yfir þá einstaklinga sem sitja í stjórn og gefa kost á sér áfram. Til formanns Linda Björk Gunnlaugsdóttir Til aðalstjórnar: Jón Þorberg Steindórsson og til vara í varastjórn Ólafur Gunnarsson Ragnhildur Gísladóttir og til vara í varastjórn Sigurbjörn Eiríksson Sóley Margeirsdóttir og til vara í varastjórn Unnur Sigurpálsdóttir og til vara í varastjórn Þórhildur Katrín Stefánsdóttir Til varastjórnar Hilmar Guðmannsson Reynir Atli Jónsson
2. október 2026
Menntaráðstefna FEIF og LH var haldin í Skagafirði dagana 23. til 25. september. Ráðstefnan var mjög vel sótt, en þátttakendur voru um 120 og komu víða að úr heiminum. Meginþema ráðstefnunnar var „transitions“ eða skiptingar af öllu tagi - gangskiptingar, gangsetning, hraðabreytingar, upphaf skeiðþjálfunar og niðurtaka á skeið í keppni ásamt umfjöllun um velferð keppnishesta. Aðalkennarar og fyrirlesarar ráðstefnunnar voru Eyjólfur Ísólfsson, Árni Björn Pálsson, Mette Mannseth, Þórarinn Eymundsson, Ísólfur Líndal Þórisson, Þorsteinn Björnsson og Sigríður Björnsdóttir. Þar að auki tóku nemendur Háskóla Íslands á Hólum þátt í ráðstefnunni ásamt skólahestunum og reiðkennurum skólans. Þátttakendur höfðu tækifæri til að senda spurningar til kennara og fyrirlesara en þátttakendur nýttu það tækifæri vel. Þar að auki var þátttakendum skipt upp í umræðuhópa og daglega hittust hóparnir til að ræða fyrirfram ákveðin umræðuefni sem endurspegluðu viðfangsefni ráðstefnunnar. Ráðstefnunni lauk á líflegum pallborðsumræðum þar sem kennarar og fyrirlesarar sátu fyrir svörum. Mikil ánægja var á meðal þátttakenda með menntaráðstefnuna, erindin voru fjölbreytt og mjög áhugaverð. Það var menntanefnd LH sem átti veg og vanda að allri skipulagningu viðburðarins og eru þeim færðar miklar þakkir fyrir. Menntanefnd LH skipa Mette Mannseth formaður, Friðdóra Friðriksdóttir, Herdís Reynisdóttir, Karen Woodrow, Magnús Lárusson, Reynir Atli Jónsson og Sylvía Sigurbjörnsdóttir.
17. september 2026
Hæfileikamótun LH er fyrir unglinga fædd 2010-2013
16. september 2026
Vigdís Matthíasdóttir er nýr yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH
14. september 2026
Íslandsmót og Áhugamannamót eru auglýst til umsóknar
Lesa meira