Reiðkennaralisti FEIF uppfærður

5. mars 2026

Listi yfir virka reiðkennara á Íslandi hefur nú verið uppfærður á menntasíðu FEIF. 

Samkvæmt reglum FEIF eiga allir reiðkennarar að taka þátt í símenntunarnámskeiði sem samþykkt er af sínu landssambandi til þess að vera skráður reiðkennari á reiðkennaralista FEIF (Matrix list). Enginn reiðkennari á að vera á listanum sem ekki uppfyllir kröfur um endurmenntun/símenntun. 


Til að halda nafni sínu á reiðkennaralistanum gerir LH eftirfarandi lágmarkskröfur:


  • Á þriggja ára tímabili þarf að taka þátt í a.m.k. einu tveggja daga símenntunarnámskeiði sem er samþykkt af menntanefnd LH eða að lágmarki taka 16 símenntunareiningar (45 mín) samþykktar af Menntanefnd LH.
  • Til að komast aftur á listann þarf að fara á eitt opinbert símenntunarnámskeið samþykkt af Menntanefnd LH eða FEIF (16 símenntunareiningar)


Listi um gild símennuntarnámskeið er á vefsíðu LH, listinn yfir námskeið er ekki tæmandi og hægt er að sækja um vottun á öðrum námskeiðum til menntanefndar LH lh@lhhestar.is.


Kröfur um símenntun eru gerðar til að:

  • viðhalda gæðum reiðkennslu
  • stuðla að reglulegri uppfærslu þekkingar og hæfni reiðkennara
  • fylgja markmiðum FEIF um þjálfun hesta, reiðkennslu og hestavelferð
  • tryggja að svipuðum reglum sé fylgt og að sambærilegar kröfur séu gerðar í öllum FEIF löndum


Skila þarf inn staðfestingu á símenntun fyrir 1. feb. ár hvert og Skrifstofa LH sér um að uppfæra listann og senda til FEIF.


Ef reiðkennari finnur ekki nafn sitt á listanum, þrátt fyrir að hafa lokið endurmenntun, er viðkomandi beðinn um að senda póst á lh@lhhestar.is.

 

Fréttasafn

15. október 2026
Hvað er Landsmót og fyrir hverja er það?
13. október 2026
Gríðarlega sterk keppnispör í öllum greinum
8. október 2026
Hörð samkeppni um HM sæti
7. október 2026
Erlendur Árnason járningamaður verður hluti af landsliðsteyminu í fram yfir HM 2027
5. október 2026
65. landsþing LH verður haldið í Hveragerði 30. til 31. október 2026. Kjörnefnd LH vekur athygli á að þau sem hyggjast gefa kost á sér til stjórnarsetu tilkynni framboð sitt til nefndarinnar eigi síðar en tveimur vikum fyrir landsþing (sjá grein 4.6 í lögum LH). Framboðsfrestur er til miðnættis 16. október . Stjórn LH fer með æðsta vald í málefnum sambandsins milli þinga. Stjórnin skal skipuð sjö mönnum, formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum. Varastjórn skal skipuð fimm mönnum og taka þeir sæti í aðalstjórn í samræmi við atkvæðahlutfall. Kjörtímabil er til tveggja ára. Kjörgengir í stjórn eru allir félagar í hestamannafélögum sem eru aðilar að LH. Kjörnefnd hvetur þá sem áhuga hafa á að starfa í stjórn LH (stjórn eða varastjórn) að tilkynna framboð fyrir tilsettan tíma til kjörnefndar. Kjörnefnd skipa: Atli Már Ingólfsson, formaður ( atli@landlogmenn.is ) Jón Geir Sigurbjörnsson (jongeir@gmail.com) Hafrún Hlín Magnúsdóttir (hafrunhlin@gmail.com) Samkvæmt lögum LH, (grein 4.6 Kosning stjórnar), birtir kjörnefnd hér lista yfir þá einstaklinga sem sitja í stjórn og gefa kost á sér áfram. Til formanns Linda Björk Gunnlaugsdóttir Til aðalstjórnar: Jón Þorberg Steindórsson og til vara í varastjórn Ólafur Gunnarsson Ragnhildur Gísladóttir og til vara í varastjórn Sigurbjörn Eiríksson Sóley Margeirsdóttir og til vara í varastjórn Unnur Sigurpálsdóttir og til vara í varastjórn Þórhildur Katrín Stefánsdóttir Til varastjórnar Hilmar Guðmannsson Reynir Atli Jónsson
2. október 2026
Menntaráðstefna FEIF og LH var haldin í Skagafirði dagana 23. til 25. september. Ráðstefnan var mjög vel sótt, en þátttakendur voru um 120 og komu víða að úr heiminum. Meginþema ráðstefnunnar var „transitions“ eða skiptingar af öllu tagi - gangskiptingar, gangsetning, hraðabreytingar, upphaf skeiðþjálfunar og niðurtaka á skeið í keppni ásamt umfjöllun um velferð keppnishesta. Aðalkennarar og fyrirlesarar ráðstefnunnar voru Eyjólfur Ísólfsson, Árni Björn Pálsson, Mette Mannseth, Þórarinn Eymundsson, Ísólfur Líndal Þórisson, Þorsteinn Björnsson og Sigríður Björnsdóttir. Þar að auki tóku nemendur Háskóla Íslands á Hólum þátt í ráðstefnunni ásamt skólahestunum og reiðkennurum skólans. Þátttakendur höfðu tækifæri til að senda spurningar til kennara og fyrirlesara en þátttakendur nýttu það tækifæri vel. Þar að auki var þátttakendum skipt upp í umræðuhópa og daglega hittust hóparnir til að ræða fyrirfram ákveðin umræðuefni sem endurspegluðu viðfangsefni ráðstefnunnar. Ráðstefnunni lauk á líflegum pallborðsumræðum þar sem kennarar og fyrirlesarar sátu fyrir svörum. Mikil ánægja var á meðal þátttakenda með menntaráðstefnuna, erindin voru fjölbreytt og mjög áhugaverð. Það var menntanefnd LH sem átti veg og vanda að allri skipulagningu viðburðarins og eru þeim færðar miklar þakkir fyrir. Menntanefnd LH skipa Mette Mannseth formaður, Friðdóra Friðriksdóttir, Herdís Reynisdóttir, Karen Woodrow, Magnús Lárusson, Reynir Atli Jónsson og Sylvía Sigurbjörnsdóttir.
17. september 2026
Hæfileikamótun LH er fyrir unglinga fædd 2010-2013
16. september 2026
Vigdís Matthíasdóttir er nýr yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH
14. september 2026
Íslandsmót og Áhugamannamót eru auglýst til umsóknar
11. september 2026
Landssamband hestamannafélaga kynnir ritið Reiðvegir Íslands – Saga reiðleiða og reiðvega frá landnámi til nútíma. Frá hófförum í klöpp til stafrænnar kortasjár , eftir Halldór H. Halldórsson sem nú er aðgengilegt á vef LH undir flipanum almenningsíþróttin - reiðvegamál. Um aldir lágu leiðir milli byggða um heiðar, dali og hálendi, mótaðar af ferðum kynslóðanna. Hesturinn var helsta samgöngutæki landsmanna og reiðleiðirnar lífæð samgangna; þær tengdu fólk og byggðir, auðvelduðu samskipti og urðu með tímanum hluti af sögu og menningararfi þjóðarinnar. Í Reiðvegum Íslands er saga þessara leiða rakin frá landnámi til samtímans. Fjallað er meðal annars um fornar þjóðleiðir, leiðir til Þingvalla, landpósta og þróun samgangna, auk helstu hálendisleiða um Kjöl, Sprengisand og Arnarvatnsheiði. Einnig er fjallað um Hellisheiði og Kolviðarhól og þær miklu breytingar sem urðu á samgöngum þegar bíllinn tók við af hestinum sem helsta samgöngutæki þjóðarinnar. Sagan er þó ekki aðeins rakin aftur í tímann. Ritið fjallar jafnframt um þróun reiðvegagerðar á síðari áratugum, skipulags- og fjármögnunarmál, skráningu reiðleiða og tilurð Kortasjár Landssambands hestamannafélaga. Þannig er leitast við að tengja saman sögu gömlu þjóðleiðanna og það reiðvegakerfi sem hestamenn landsins byggja á í dag. Bókin byggir á áratuga vinnu höfundar við málefni reiðvega og samgangna innan hestamennskunnar, auk umfangsmikillar söfnunar heimilda, korta, ljósmynda og annarra gagna. Markmiðið er að varðveita sögu reiðleiðanna en um leið draga fram mikilvægi reiðvega sem hluta af samgönguinnviðum landsins, menningararfi þess og þeirri lifandi hefð sem íslensk hestamennska byggir á. Um höfundinn Halldór H. Halldórsson hefur um áratugaskeið unnið að reiðvega- og samgöngumálum hestamanna. Hann sat í stjórn Landsmóts hestamanna árið 2000 og í varastjórn Landssambands hestamannafélaga 2002–2006. Hann tók sæti í Ferða- og samgöngunefnd LH árið 2002 og var formaður nefndarinnar frá 2006 til 2020. Auk þess hefur Halldór komið að reiðvegamálum á vettvangi hestamannafélaga og tekið virkan þátt í uppbyggingu, skráningu og stefnumótun reiðleiða og reiðvega. Sú reynsla, ásamt áratuga söfnun heimilda um samgöngusögu ríðandi fólks, myndar grunninn að Reiðvegum Íslands. Með útgáfu ritsins er þessi saga tekin saman og gerð aðgengileg hestamönnum og öðrum þeim sem áhuga hafa á samgöngusögu Íslands, íslenska hestinum og þeim leiðum sem tengt hafa byggðir landsins saman frá fyrstu tíð. 
Lesa meira