Landsmót 2026 er hafið - gleðilega hátíð!

6. júlí 2026

Gleðilega hátíð!

Landsmót hestamanna 2026 er hafið. Landssamband hestamannafélaga óskar öllum keppendum og sýnendum góðs gengis og vill um leið minna keppendur á að sýna íþróttamannslega framkomu í hvívetna og koma fram af virðingu gagnvart öðrum keppendum, starfsfólki, sjálfboðaliðum og gestum en ekki síst hestinum okkar sem þetta allt snýst um.


Keppendum í hestaíþróttum er óheimilt að vera undir áhrifum áfengis og/eða vímuefna og gilda lyfjareglur Lyfjaeftirlits Íslands og alþjóðlegar lyfjareglur. Tilgangur lyfjareglnanna er að vernda grundvallarrétt íþróttamanna til að taka þátt í lyfjalausum íþróttum og stuðla þannig að heilbrigði, sanngirni og jafnrétti fyrir íþróttafólk um allan heim.

Einnig gilda um alla keppni í hestaíþróttum lyfjareglur FEIF og FEI (Federation Equestre Internationale) um lyfjanotkun hesta.


Fylgist með dagskrá og niðurstöðum mótsins á landsmot.is og facebook-síðu Landsmóts og í Horseday appinu.

Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
23. júní 2026
Ingimar Sveinsson, heiðursfélagi og gullmerkishafi Landssambands hestamannafélaga er látinn, 98 ára að aldri. Ingimar var hestamaður, bóndi, kennari og frumkvöðull í hestvænum tamningaraðferðum hérlendis. Ingimar fæddist 27. febrúar 1928 á Egilsstöðum á Fljótsdalshéraði og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Sveinn Jónsson, bóndi og oddviti á Egilsstöðum, og Sigríður Fanney Jónsdóttir, húsfreyja og hótelhaldari á Egilsstöðum. Ingimar lauk stúdentsprófi frá MA 1948, BSc.-prófi í búvísindum frá Washington State University, Pullman í Washington-ríki í Bandaríkjunum 1952, dvaldi við nám í Danmörku sumarið 1986, í Þýskalandi 1993 og í Kanada og Bandaríkjunum 1995. Ingimar var bóndi á Egilsstöðum (á Egilsstaðabúinu) 1952-86 en gerðist kennari við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, m.a. í hrossarækt og tamningum, frá ársbyrjun 1986 til vors 1998. Jafnframt stundaði hann þar tilraunir og rannsóknir í hrossarækt. Hann kynnti sér ýmsar erlendar tamningaaðferðir hrossa, sem hann aðlagaði fyrir íslenska hestinn. Ingimar hélt fjölda tamninganámskeiða um allt land og víða erlendis, auk þess að flytja erindi og halda fræðslunámskeið um íslenska hestinn. Ingimar var stofnfélagi Hestamannafélagsins Freyfaxa á Fljótsdalshéraði og sat í stjórn þess í 25 ár, þar af formaður í fimm ár. Hann var stofnfélagi og fyrsti formaður ungmenna- og íþróttafélagsins Hattar á Egilsstöðum. Sat í stjórn Kaupfélags Héraðsbúa, var í nokkur ár formaður Bændafélags Fljótsdalshéraðs, og í stjórn Ræktunarsambands Austur-Héraðs og formaður og framkvæmdastjóri þess um skeið. Ingimar skrifaði fjölda greina í blöð og tímarit og kennslubækur í hrossarækt. Ritaði einnig bókina Hrossafræði Ingimars, sem var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Hagþenkis árið 2010. Landssamband hestamannafélaga vottar fjölskyldu og vinum Ingimars samúð.
Lesa meira