Íslandsmót ungmenna og fullorðinna 2026

2. júlí 2026

Vel heppnað Íslandsmót í Sörla

Íslandsmót ungmenna og fullorðinna var haldið 16. – 20. júní á glæsilegu keppnissvæði hestamannafélagsins Sörla í Hafnarfirði. Mótið var afar vel heppnað og öllum sem komu að skipulagningu og framkvæmd mótsins eru færðar kærar þakkir. 

100 m skeið

Úrslitadagurinn hófst á keppni í 100 m flugskeiði. Góðir tímar náðust í 100 m skeiði en fjótastar voru þær Eyrún Ýr Pálsdóttir á Friðsemd frá Kópavogi en þær fóru á tímanum 7,30 sek. Annar var Gústaf Ásgeir Hinriksson á Pilt frá Sturlureykjum á tímanum 7,49 sek. og í þriðja sæti var Hanna Rún Ingibergsdóttir á Orku frá Kjarri á tímanum 7,57 sek.


Í ungmennaflokki voru það þau Dagur Sigurðsson og Tromma frá Skúfslæk sem voru fljótust en þau fóru á tímanum 7,57 sek. Önnur var Lilja Dögg Ágústsdóttir og Stanley frá Hlemmiskeiði á tímanum 7,99 sek. og í þriðja sæti var Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal á Alviðru frá Kagaðarhóli á tímanum 8,03 sek. 

Gæðingaskeið

Fyrr í vikunni fór fram stórkostleg keppni í gæðingaskeiði. Margir mjög vel útfærðir sprettir sáust og keppnin jöfn og gríðarlega sterk með frábærum árangri. Einkunin 7,92 dugði í 8 – 9 sæti á Íslandsmóti í ár en sú tala skilaði bronsi á Íslandsmóti 2025. Íslandsmeistari í gæðingaskeiði árið 2026 er Árni Björn Pálsson á Elmu frá Staðarhofi en þau hlutu í einkunn 9,04. Í öðru sæti var Haukur Baldvinsson á Andvara frá Kerhóli með einkunina 8,79 og í þriðja sæti var Elvar Þormarsson á Elektru frá Engjavatni með einkunina 8,75.   



Keppni í gæðingaskeiði ungmenna var ekki síður spennandi og jöfn, með mörgum flottum sprettum. Sigurvegari var Guðný Dís Jónsdóttir á Erlu frá Feti með einkunina 7,83. Annar var Matthías Sigurðsson á Gammi frá Efri-Þverá með einkunina 7,79 og í þriðja sæti var Lilja Rún Sigurjónsdóttir á Heiðu frá Skák með einkunina 7,63. 

250 m skeið

Keppni í 250 m skeiði var æsispennandi en einn hundraðshluti greindi tvo fljótustu hestana að. Sigurvegari var Páll Bragi Hólmarsson á Snjalli frá Austurkoti á tímanum 22,35 sek. Næstur á eftir honum kom Árni Björn Pálsson á Þokka frá Varmalandi á tímanum 22,36 sek. og þriðja var Hanne Smidesang á Vináttu frá Árgerði á tímanum 22,42 sek. 

Í ungmennaflokki var einungis einn keppandi, Sara Dís Snorradóttir á Djarfi frá Litla-Hofi en þau fóru á frábærum tíma, 22,75 sek. 

150 m skeið

Góðir tímar náðust í 150 m skeiði en hlutskarpastur var Teitur Árnason á Hátíð frá Sumarliðabæ 2 á frábærum tíma, 13,88 sek. Annar var Hans Þór Hilmarsson á Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði á tímanum 14,03 sek. og í þriðja sæti var Konráð Valur Sveinsson á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu 2 á tímanum 14,10 sek.



Í ungmennaflokki sigraði Sigurður Steingrímsson á Gjafari frá Hrafnsstöðum á tímanum 14,94 sek. Annar var Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal á Alviðru frá Kagaðarhóli á tímanum 14.95 sek. og þriðja var Guðrún Lilja Rúnarsdóttir á Kára frá Morastöðum á tímanum 14,97 sek. 

Fjórgangur

Fyrstu úrslit hringvallagreina voru úrslit í fjórgangi í ungmennaflokki. Mörg góð tilþrif sáust en að lokum var það Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal á Gretti frá Hólum sem stóð uppi sem sigurvegari. Þeir sigruðu með nokkrum yfirburðum, einkunn þeirra var 7,50. Önnur var Lilja Rún Sigurjónsdóttir á Draupni frá Dimmuborg með einkunina 7,27 og þriðja var Eva Kærnested á Styrk frá Skák með 7,13 í einkunn. Lilja Rún og Draupnir frá Dimmuborg eru jafnframt samanlagðir fjórgangssigurvegarar í ungmennaflokki.



Í úrslitum í fjórgangi fullorðinna urðu nokkrar sviptingar frá því í forkeppni. Keppnin var mjög jöfn en nokkrar kommur skildu knapa að sætum, allir knapar úrslita með um og yfir 8,0 í einkunn. Sigurvegari og jafnframt íslandsmeistari í fjórgangi fullorðinna var Jakob Svavar Sigurðsson á Skarpi frá Kýrholti með einkunnina 8,20. Önnur var Guðmunda Ellen Sigurðardóttir á Flaumi frá Fákshólum með einkunina 8,10 og jafnar í 3 – 4 sæti voru Eyrún Ýr Pálsdóttir á Drangi frá Steinnesi og Sara Sigurbjörnsdóttir á Dökkva frá Engjavatni með einkunina 8,07. 

Fimmgangur

Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal hélt uppteknum hætti þegar komið var í næstu úrslit. Í úrslitum fimmgangs ungmenna sat hann Kalsa frá Þúfum. Eftir jafna sýningu kláraði Guðmar sína sýningu með góðum skeiðsprettum sem skilaði honum og Kalsa á toppinn. Lokaeinkun var 7,05 og annar Íslandsmeistaratitill Guðmars í höfn. Önnur var Herdís Björg Jóhannsdóttir á Skorra frá Vöðlum með 7,00 í einkunn og þriðja var Eik Elvarsdóttir á Ronju frá Strandarhöfði með 6,90 í einkunn. Samanlagður fimmgangssigurvegari ungmenna var Dagur Sigurðsson á Blakki frá Traðarholti.


A – úrslit í fimmgangi fullorðinna voru líka jöfn og spennandi. Árni Björn Pálsson á hinum glæsilega Lazarusi frá Ásmundarstöðum 3 skiluðu heilli og jafnri sýningu og stóðu uppi sem sigurvegarar. Annar íslandsmeistaratitill hjá Árna Birni í höfn. Einkunn þeirra í úrslitum var 7,71. Önnur var Jóhanna Margrét Snorradóttir á Fronti frá Finnastöðum með einkunina 7,67 og þriðji var Ásmundur Ernir Snorrason á Aski frá Holtsmúla 1 með einkunina 7,55. 

Slaktaumatölt

Næst var komið að úrslitum í slaktaumatölti. Íslandsmeistari í slaktaumatölti ungmenna er Matthías Sigurðsson á Morgunroða frá Sauðárkróki með einkunina 7,50. Önnur var Fanndís Helgadóttir á Ötul frá Narfastöðum með 7,25 í einkunn og í þriðja sæti var Elva Rún Jónsdóttir á Júpíter frá Votumýri 2 með 7,00 í einkunn.



Jakob Svavar Sigurðsson landaði sínum öðrum íslandsmeistaratitli þegar hann sigraði úrslit í slaktaumatölti. Hann sat Hrefnu frá Fákshólum og einkunn þeirra var 8,88. Jakob og Hrefna endurtóku þar með leikinn frá Íslandsmóti 2024. Önnur var Arnhildur Helgadóttir á Frosta frá Hjarðartúni með einkunina 8,67 og í þriðja sæti var Gústaf Ásgeir Hinriksson á Gými frá Skúfslæk með einkunina 8,21. Gústaf Ásgeir og Gýmir eru jafnframt íslandsmeistarar í samanlögðum fimmgangsgreinum. 

Tölt

Að lokum var komið að úrslitum í tölti en þau úrslit verða lengi í minnum höfð. Fyrst var komið að úrslitum í tölti ungmenna. Þar kórónaði Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal árangur dagsins með því að landa sínum þriðja íslandsmeistaratitli. Frábær árangur hjá Guðmari. Guðmar sat Gretti frá Hólum í úrslitunum og einkunn þeirra var 7,89. Önnur var Elva Rún Jónsdóttir á Goða frá Garðabæ með einkunina 7,67 og í þriðja sæti var Eva Kærnested á Loga frá Lerkiholti með einkunina 7,33.


Síðustu úrslit á þessu íslandsmóti voru úrslit í tölti fullorðinna. Þessi töltúrslit eru einhver stórkostlegustu töltúrslit sem riðin hafa verið. Þar öttu kappi tvö bestu töltpör landsins um þessar mundir, Jakob Svavar og Skarpur frá Kýrholti og Ásmundur Ernir og Hlökk frá Strandarhöfði. Úrslitin voru hnífjöfn fram á síðustu stundu og enduðu með minnsta mögulega mun. Alls voru átta 10 gefnar í úrslitunum en aldei áður hafa svo margar 10 verið gefnar í einum úrslitum. Íslandsmeistari í tölti er Jakob Svavar Sigurðsson á Skarpi frá Kýrholti með einkunina 9,61 og kórónaði Jakob þar með árangur sinn á þessu móti en hann landaði þrem íslandsmeistaratitlum. Annar var Ásmundur Ernir Snorrason á Hlökk frá Strandarhöfði en þau hlutu 9,56 í einkunn. Í þriðja sæti var Benjamín Sandur Ingólfsson á Eldingu frá Hrímnisholti með einkunina 8,89.

Samanlagður fjórgangssigurvegari fullorðinna er Ásmundur Ernir Snorrason á Hlökk frá Strandarhöfði. 


Frábæru Íslandsmóti 2026 er lokið og við óskum öllum ný krýndum Íslandsmeisturum innilega til hamingju og þökkum öllum keppendum, mótshöldurum og sjálfboðaliðum fyrir þeirra aðkomu að þessu glæsilega móti.

Fréttasafn

17. september 2026
Hæfileikamótun LH er fyrir unglinga fædd 2010-2013
16. september 2026
Vigdís Matthíasdóttir er nýr yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH
14. september 2026
Íslandsmót og Áhugamannamót eru auglýst til umsóknar
11. september 2026
Landssamband hestamannafélaga kynnir ritið Reiðvegir Íslands – Saga reiðleiða og reiðvega frá landnámi til nútíma. Frá hófförum í klöpp til stafrænnar kortasjár , eftir Halldór H. Halldórsson sem nú er aðgengilegt á vef LH undir flipanum almenningsíþróttin - reiðvegamál. Um aldir lágu leiðir milli byggða um heiðar, dali og hálendi, mótaðar af ferðum kynslóðanna. Hesturinn var helsta samgöngutæki landsmanna og reiðleiðirnar lífæð samgangna; þær tengdu fólk og byggðir, auðvelduðu samskipti og urðu með tímanum hluti af sögu og menningararfi þjóðarinnar. Í Reiðvegum Íslands er saga þessara leiða rakin frá landnámi til samtímans. Fjallað er meðal annars um fornar þjóðleiðir, leiðir til Þingvalla, landpósta og þróun samgangna, auk helstu hálendisleiða um Kjöl, Sprengisand og Arnarvatnsheiði. Einnig er fjallað um Hellisheiði og Kolviðarhól og þær miklu breytingar sem urðu á samgöngum þegar bíllinn tók við af hestinum sem helsta samgöngutæki þjóðarinnar. Sagan er þó ekki aðeins rakin aftur í tímann. Ritið fjallar jafnframt um þróun reiðvegagerðar á síðari áratugum, skipulags- og fjármögnunarmál, skráningu reiðleiða og tilurð Kortasjár Landssambands hestamannafélaga. Þannig er leitast við að tengja saman sögu gömlu þjóðleiðanna og það reiðvegakerfi sem hestamenn landsins byggja á í dag. Bókin byggir á áratuga vinnu höfundar við málefni reiðvega og samgangna innan hestamennskunnar, auk umfangsmikillar söfnunar heimilda, korta, ljósmynda og annarra gagna. Markmiðið er að varðveita sögu reiðleiðanna en um leið draga fram mikilvægi reiðvega sem hluta af samgönguinnviðum landsins, menningararfi þess og þeirri lifandi hefð sem íslensk hestamennska byggir á. Um höfundinn Halldór H. Halldórsson hefur um áratugaskeið unnið að reiðvega- og samgöngumálum hestamanna. Hann sat í stjórn Landsmóts hestamanna árið 2000 og í varastjórn Landssambands hestamannafélaga 2002–2006. Hann tók sæti í Ferða- og samgöngunefnd LH árið 2002 og var formaður nefndarinnar frá 2006 til 2020. Auk þess hefur Halldór komið að reiðvegamálum á vettvangi hestamannafélaga og tekið virkan þátt í uppbyggingu, skráningu og stefnumótun reiðleiða og reiðvega. Sú reynsla, ásamt áratuga söfnun heimilda um samgöngusögu ríðandi fólks, myndar grunninn að Reiðvegum Íslands. Með útgáfu ritsins er þessi saga tekin saman og gerð aðgengileg hestamönnum og öðrum þeim sem áhuga hafa á samgöngusögu Íslands, íslenska hestinum og þeim leiðum sem tengt hafa byggðir landsins saman frá fyrstu tíð. 
11. september 2026
Á nýlega afstöðnu Norðurlandamóti íslenska hestsins í Svíþjóð komu upp veikindi í þremur hrossum danska landsliðsins. Þær sorglegu fréttir bárust í vikunni að einn af þeim hestum sem veiktust á mótinu sé nú fallinn. Á alþjóðlegum mótum sem þessu eru hross frá hverju landi hýst aðskilin og líkamshiti allra hrossa mældur tvisvar á dag. Þetta verklag varð til þess að veikindin uppgötvuðust snemma og veikindin virðist hafa haldist innan afmarkaðs hóps. Sýnataka fór strax af stað til að útiloka alvarlega smitsjúkdómavalda eins og EHV-1 og EIV (hestainflúensu) og anaplasmósu, sem er bakteríusjúkdómur sem berst með skógarmítlum og einkennist meðal annars af háum hita. Niðurstöður rannsókna voru neikvæðar fyrir þessa sjúkdóma og einnig fyrir svokallaða hitasótt sem við þekkjum hér á landi síðan 1998 (eCov). Einnig var skoðað hvort veikindin væru tengd fóðri. Tekin voru sýni úr heyi sem hestarnir sem veiktust fengu og niðurstöður þeirrar rannsóknar benda sterklega til að myglusvepp í heyinu sé um að kenna. Ekki er vitað til þess að fleiri hross hafi veikst síðan að mótinu lauk en knapar hafa verið beðnir um að fylgjast vel með heilsu sinna hesta á næstu vikum. Allir knapar íslenska landsliðsins voru vel upplýstir um stöðu mála á mótinu og hvaða smitvarnarráðstöfunum ætti að fylgja við heimkomu. Íslenski hrossastofninn er einangraður og hefur því takmarkað ónæmi gegn mörgum þeim smitsjúkdómum sem finnast erlendis. Auk þess eru aðstæður hér á landi þannig að þéttleiki hrossa er mikill í stórum hesthúsahverfum og hross ferðast mikið á milli landshluta til dæmis á mótum, í stóðréttum, graðhestagirðingum og hestaferðum. Reynsla af fyrri faröldrum sýna að smit breiðist hratt út hér á landi og gæti reynst mjög erfitt að hefta útbreiðslu smitsjúkdóms þegar hann er kominn til landsins á annað borð. Ýtrustu kröfur eru í gildi hér á landi til að verjast smitsjúkdómum í dýrum. Innflutningur notaðra reiðtygja, reiðhanska, leður- og vaxfatnaðar er með öllu óheimill. Annan reiðfatnað má taka með sér hafi hann verið þveginn fyrir komu til landsins. Matvælastofnun og Landssamband hestamannafélaga benda öllum hestamönnum á að kynna sér leiðbeiningar á heimasíðu MAST og leiðbeina erlendum gestum og ferðamönnum á sínum vegum.
28. ágúst 2026
Við yfirferð úrslita frá Íslandsmóti barna og unglinga 2026 kom í ljós að ranglega var tilkynnt um stigahæsta knapa í unglingaflokki. Ástæðu þess má rekja til þýðingarvillu í íslenskri útgáfu keppnisreglna FEIF sem hafði áhrif á útreikning stiganna. Samkvæmt leiðréttum útreikningum er Kristín Eir Hauksdóttir Holaker stigahæsti knapi í unglingaflokki á Íslandsmóti 2026. Landssamband hestamannafélaga og mótshaldari Hestamannafélagið Sleipnir biðja hlutaðeigandi innilega velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.  Við óskum Kristínu Eir hjartanlega til hamingju með árangurinn.
27. ágúst 2026
Við þurfum að stækka hóp gæðingadómara!
21. ágúst 2026
Leitað er eftir metnaðarfullum reiðkennara sem hefur áhuga á að starfa með unglingum.
19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
Lesa meira