Landsmót 2026

17. júlí 2026

Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið

Vel heppnuðu Landsmóti hestamanna 2026 á Hólum í Hjaltadal er lokið. Framkvæmd mótsins tókst vel til og fjöldi gesta lagði leið sína norður til að fylgjast með bestu hestum og knöpum landsins. Hestakostur á mótinu var frábær og áhorfendur urðu vitni að nokkrum met sýningum bæði í kynbótadómum og keppni. Nokkuð vel rættist úr veðrinu þó að heldur hressilega hafi blásið síðstu dagana. Hjaltadalurinn heldur vel utan um gesti mótsins og góð stemming var í brekkunni frá fyrsta degi. 


Áfram, líkt og síðustu ár, má sjá gríðarlegan metnað og miklar framfarir á sýningum í yngri flokkum. Greinilegt er að hestamannafélög landsins leggja mörg hver mikinn metnað í yngri flokka starf sem bæði ýtir undir áhuga og eflir fagmennsku. Í heildina voru 400 skráningar í barnaflokk, unglingaflokk, B flokk ungmenna og A flokk ungmenna og fjöldi góðra sýninga eykst milli Landsmóta. 


Fyrstu sigurvegarar Landsmóts voru krýndir á fimmtudagskvöld þegar seinni umferðir í kappreiðaskeiði fóru fram. Landsmótssigurvegari í 250m skeiði er Konráð Valur Sveinsson og Kastor frá Garðshorni á Þelamörk en þeir fóru á tímanum 22,18 sek. Konráð Valur Sveinsson átti jafnframt besta tímann í 150m skeiði en þar sat hann Kjark frá Árbæjarhjáleigu 2 og fóru þeir á tímanum 13,84 sek. Konráð með afreks skeiðhestana sína tvo, Kastor og Kjark, endurtók þar með leikinn frá LM 2024 og sigraði tvöfalt. Glæsilegur árangur hjá Konráð sem með þessum sigri tryggði sér Landsmótstitil í 250m skeiði fjórða Landsmótið í röð. 


Keppni í 100m skeiði fór fram á föstudagskvöldi og þar öttu kappi fljótustu skeiðhestar landsins. Landsmótssigurvegari í 100m skeiði er Eyrún Ýr Pálsdóttir og Friðsemd frá Kópavogi en þær fóru á tímanum 7,46 sek. Föstudagskvöldinu lauk með frábærum úrslitum í tölti. Líkt og á Íslandsmóti voru það tveir knapar sem börðust um sigur, þeir Jakob Svavar Sigurðsson á Skarpi frá Kýrholti og Ásmundur Ernir Snorrason á Hlökk frá Strandarhöfði. Í þetta sinn voru það Ásmundur og Hlökk sem stóðu uppi sem Landsmótssigurvegarar í tölti. Einkunn þeirra var 9,78 sem er hæðsta einkunn sem gefin hefur verið í töltúrslitum. Sannarlega glæsilegur árangur hjá Ásmundi. 


Úrslitadagurinn hófst á feikna sterkum úrslitum í B flokki ungmenna. Eftir spennandi viðureign á greiðu tölti var það Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal á Gretti frá Hólum sem stóð uppi sem Landsmótssigurvegari. Þeir hlutu einkunina 8,87. Næst var komið að úrslitum í unglingaflokki. Þar var spennan ekki minni en það var að lokum 0,005 sem skar úr um sigurvegara. Landsmótssigurvegari í unglingaflokki er Gabríel Liljendal Friðfinnsson á Ólsen frá Egilsá og hlutu þeir 8,79 í einkunn. 


Næstu tvö úrslit voru úrslit í sýningagreinum mótsins. Í B flokki áhugamanna var það Hannes Sigurjónsson á Heiðri frá Eystra-Fróðholti sem stóð uppi sem sigurvegari. Einkunn þeirra var 8,67. Í A flokki ungmenna tryggði Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal sér annan sigur á Kalsa frá Þúfum. Einkunn þeirra var 8,71. Sannarlega glæsilegur árangur á mótinu hjá Guðmari Hólm. Guðmari var jafnframt veittur Öder bikarinn, farandgripur sem veittur er framúrskarandi pari, ungum reiðmanni og hesti hans, sem standa fyrir glæsileika og ferguð í íslenskri reiðmennsku, faglegur og prúður knapi ásamt vel tömdum, heillandi hesti sem saman leysa verkefnið sitt af ástríðu og prýði. Öder bikarinn er veittur til minningar um Einar Öder Magnússon. 


Í úrslitum í barnaflokki voru margar afar fallegar sýningar. Viktoría Huld Hannesdóttir og Þinur frá Enni komu aftur til leiks og strax í forkeppni sást að þau ætluðu sér að endurtaka leikinn frá LM 2024. Þau tilltu sér á toppinn eftir sérstaka forkeppni og héldu því sæti alla leið til loka A-úrslita. Landsmótssigurvegari í barnaflokki, annað Landsmótið í röð, eru Viktoría Huld Hannesdóttir og Þinur frá Enni með einkunina 9,06. Frábært par. 


Í B flokki var það Kór frá Skálakoti ásamt knapa sínum Jakobi Svavari Sigurðssyni sem stóðu uppi sem sigurvegarar. Einkunn þeirra var 9,19. A úrslitin í B flokki voru jöfn og spennandi en í þetta sinn voru það 4 frábærir stóðhestar sem röðuðu sér í topp sætin.


Félag tamningamanna veitti Elinu Holst og Ásmundi Erni Snorrasyni FT fjöður fyrir sýningar sýnar á Hugsýn frá Ketilsstöðum og Hlökk frá Strandarhöfði. Þá hlaut Brynja Kristinsdóttir reiðmennskuverðlaun FT en þau verðlaun eru veitt knapa sem sýnir framúrskarandi reiðmennsku og framkomu með hesta sína, hvort sem er í kynbótasýningum eða í keppni. 


Landsmóti 2026 lauk með frábærum úrslitum í A flokki gæðinga. Landsmótssigurvegari í A flokki er hinn frábæri gæðingur Sindri frá Hjarðartúni ásamt knapa sínum Hans Þór Hilmarssyni. Einkunn þeirra var 9,13. Úrslitin voru glæsilegur endir á góðu Landsmóti.



Sigurvegurum, þátttakendum, starfsmönnum, sjálfboðaliðum og hestamönnum öllum eru sendar hamingjuóskir með frábært Landsmót. Sjáumst á Gaddstaðaflötum 2028. 

Fréttasafn

15. október 2026
Hvað er Landsmót og fyrir hverja er það?
13. október 2026
Gríðarlega sterk keppnispör í öllum greinum
8. október 2026
Hörð samkeppni um HM sæti
7. október 2026
Erlendur Árnason járningamaður verður hluti af landsliðsteyminu í fram yfir HM 2027
5. október 2026
65. landsþing LH verður haldið í Hveragerði 30. til 31. október 2026. Kjörnefnd LH vekur athygli á að þau sem hyggjast gefa kost á sér til stjórnarsetu tilkynni framboð sitt til nefndarinnar eigi síðar en tveimur vikum fyrir landsþing (sjá grein 4.6 í lögum LH). Framboðsfrestur er til miðnættis 16. október . Stjórn LH fer með æðsta vald í málefnum sambandsins milli þinga. Stjórnin skal skipuð sjö mönnum, formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum. Varastjórn skal skipuð fimm mönnum og taka þeir sæti í aðalstjórn í samræmi við atkvæðahlutfall. Kjörtímabil er til tveggja ára. Kjörgengir í stjórn eru allir félagar í hestamannafélögum sem eru aðilar að LH. Kjörnefnd hvetur þá sem áhuga hafa á að starfa í stjórn LH (stjórn eða varastjórn) að tilkynna framboð fyrir tilsettan tíma til kjörnefndar. Kjörnefnd skipa: Atli Már Ingólfsson, formaður ( atli@landlogmenn.is ) Jón Geir Sigurbjörnsson (jongeir@gmail.com) Hafrún Hlín Magnúsdóttir (hafrunhlin@gmail.com) Samkvæmt lögum LH, (grein 4.6 Kosning stjórnar), birtir kjörnefnd hér lista yfir þá einstaklinga sem sitja í stjórn og gefa kost á sér áfram. Til formanns Linda Björk Gunnlaugsdóttir Til aðalstjórnar: Jón Þorberg Steindórsson og til vara í varastjórn Ólafur Gunnarsson Ragnhildur Gísladóttir og til vara í varastjórn Sigurbjörn Eiríksson Sóley Margeirsdóttir og til vara í varastjórn Unnur Sigurpálsdóttir og til vara í varastjórn Þórhildur Katrín Stefánsdóttir Til varastjórnar Hilmar Guðmannsson Reynir Atli Jónsson
2. október 2026
Menntaráðstefna FEIF og LH var haldin í Skagafirði dagana 23. til 25. september. Ráðstefnan var mjög vel sótt, en þátttakendur voru um 120 og komu víða að úr heiminum. Meginþema ráðstefnunnar var „transitions“ eða skiptingar af öllu tagi - gangskiptingar, gangsetning, hraðabreytingar, upphaf skeiðþjálfunar og niðurtaka á skeið í keppni ásamt umfjöllun um velferð keppnishesta. Aðalkennarar og fyrirlesarar ráðstefnunnar voru Eyjólfur Ísólfsson, Árni Björn Pálsson, Mette Mannseth, Þórarinn Eymundsson, Ísólfur Líndal Þórisson, Þorsteinn Björnsson og Sigríður Björnsdóttir. Þar að auki tóku nemendur Háskóla Íslands á Hólum þátt í ráðstefnunni ásamt skólahestunum og reiðkennurum skólans. Þátttakendur höfðu tækifæri til að senda spurningar til kennara og fyrirlesara en þátttakendur nýttu það tækifæri vel. Þar að auki var þátttakendum skipt upp í umræðuhópa og daglega hittust hóparnir til að ræða fyrirfram ákveðin umræðuefni sem endurspegluðu viðfangsefni ráðstefnunnar. Ráðstefnunni lauk á líflegum pallborðsumræðum þar sem kennarar og fyrirlesarar sátu fyrir svörum. Mikil ánægja var á meðal þátttakenda með menntaráðstefnuna, erindin voru fjölbreytt og mjög áhugaverð. Það var menntanefnd LH sem átti veg og vanda að allri skipulagningu viðburðarins og eru þeim færðar miklar þakkir fyrir. Menntanefnd LH skipa Mette Mannseth formaður, Friðdóra Friðriksdóttir, Herdís Reynisdóttir, Karen Woodrow, Magnús Lárusson, Reynir Atli Jónsson og Sylvía Sigurbjörnsdóttir.
17. september 2026
Hæfileikamótun LH er fyrir unglinga fædd 2010-2013
16. september 2026
Vigdís Matthíasdóttir er nýr yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH
14. september 2026
Íslandsmót og Áhugamannamót eru auglýst til umsóknar
11. september 2026
Landssamband hestamannafélaga kynnir ritið Reiðvegir Íslands – Saga reiðleiða og reiðvega frá landnámi til nútíma. Frá hófförum í klöpp til stafrænnar kortasjár , eftir Halldór H. Halldórsson sem nú er aðgengilegt á vef LH undir flipanum almenningsíþróttin - reiðvegamál. Um aldir lágu leiðir milli byggða um heiðar, dali og hálendi, mótaðar af ferðum kynslóðanna. Hesturinn var helsta samgöngutæki landsmanna og reiðleiðirnar lífæð samgangna; þær tengdu fólk og byggðir, auðvelduðu samskipti og urðu með tímanum hluti af sögu og menningararfi þjóðarinnar. Í Reiðvegum Íslands er saga þessara leiða rakin frá landnámi til samtímans. Fjallað er meðal annars um fornar þjóðleiðir, leiðir til Þingvalla, landpósta og þróun samgangna, auk helstu hálendisleiða um Kjöl, Sprengisand og Arnarvatnsheiði. Einnig er fjallað um Hellisheiði og Kolviðarhól og þær miklu breytingar sem urðu á samgöngum þegar bíllinn tók við af hestinum sem helsta samgöngutæki þjóðarinnar. Sagan er þó ekki aðeins rakin aftur í tímann. Ritið fjallar jafnframt um þróun reiðvegagerðar á síðari áratugum, skipulags- og fjármögnunarmál, skráningu reiðleiða og tilurð Kortasjár Landssambands hestamannafélaga. Þannig er leitast við að tengja saman sögu gömlu þjóðleiðanna og það reiðvegakerfi sem hestamenn landsins byggja á í dag. Bókin byggir á áratuga vinnu höfundar við málefni reiðvega og samgangna innan hestamennskunnar, auk umfangsmikillar söfnunar heimilda, korta, ljósmynda og annarra gagna. Markmiðið er að varðveita sögu reiðleiðanna en um leið draga fram mikilvægi reiðvega sem hluta af samgönguinnviðum landsins, menningararfi þess og þeirri lifandi hefð sem íslensk hestamennska byggir á. Um höfundinn Halldór H. Halldórsson hefur um áratugaskeið unnið að reiðvega- og samgöngumálum hestamanna. Hann sat í stjórn Landsmóts hestamanna árið 2000 og í varastjórn Landssambands hestamannafélaga 2002–2006. Hann tók sæti í Ferða- og samgöngunefnd LH árið 2002 og var formaður nefndarinnar frá 2006 til 2020. Auk þess hefur Halldór komið að reiðvegamálum á vettvangi hestamannafélaga og tekið virkan þátt í uppbyggingu, skráningu og stefnumótun reiðleiða og reiðvega. Sú reynsla, ásamt áratuga söfnun heimilda um samgöngusögu ríðandi fólks, myndar grunninn að Reiðvegum Íslands. Með útgáfu ritsins er þessi saga tekin saman og gerð aðgengileg hestamönnum og öðrum þeim sem áhuga hafa á samgöngusögu Íslands, íslenska hestinum og þeim leiðum sem tengt hafa byggðir landsins saman frá fyrstu tíð. 
Lesa meira