Landslið Íslands á Norðurlandamót 2026

20. júlí 2026

Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð

Norðurlandamót í hestaíþróttum verður haldið dagana 4. – 9. ágúst á Margaretehof í Svíþjóð. Ísland sendir út flottan hóp knapa, bæði í fullorðinsflokki sem og yngri flokkum, en á mótinu er keppt í öllum greinum íþróttakeppninnar og gæðingakeppni. Hópurinn samanstendur af knöpum úr A og U21 landsliðshópum og knöpum úr hæfileikamótun LH sem taka þátt í unglingaflokki á mótinu. Auk þeirra eru í hópnum knapar sem náð hafa góðum árangri á árinu með sín hross. Hópurinn telur í heildina 21 knapa sem taka þátt með 23 hesta. 

Landsliðsteymið sem fylgir hópnum út til Svíþjóðar skipa Ísólfur Líndal Þórisson A-landsliðsþjálfari, Sigvaldi Lárus Guðmundsson U21-landsliðsþjálfari, Hinrik Þór Sigurðsson afreksstjóri LH og Sigurbjörn Eiríksson formaður afreks- og landsliðsnefndar LH. 


Knapar í fullorðinsflokki eru:

Þórarinn Eymundsson (Skagfirðingi) og Náttfari frá Varmalæk  hefur náð góðum árangri í B flokki og T1 - keppa í B flokki gæðinga, T1 og V1.

Þórður Þorgeirsson (Þýskalandi) og Gormur fra Villanora  er ríkjandi Norðurlandameistari í A flokki – keppa í A flokki gæðinga.

Reynir Örn Pálmason (Herði) og Agnar frá Margrétarhofi. Reynir Örn er fyrrverandi heimsmeistari í samanlögðum fimmgangsgreinum, Agnar hefur náð góðum árangri í B flokki – keppa í B flokki gæðinga, T1 og V1.


Kristján Árni Birgisson (Geysi), ríkjandi heimsmeistari í 250m skeiði og 100m skeiði ungmenna og Krafla frá Syðri-Rauðalæk. Keppa í  250m skeiði og 100m skeiði. Kristján mætir einnig með Hlekk frá Ytra-Vallholti í A-flokk gæðinga.


Bergþór Eggertsson (Þýskalandi) og Fjalladís frá Fornusöndum. Beggi er margfaldur heimsmeistari í skeiðgreinum og Fjalladís er fyrrum heimsmeistari í 250 m skeiði og gæðingaskeiði. Keppa í PP1 og 250m skeiði.


Snorri Dal (Sörla) og Gimsteinn frá Víðinesi. Snorri og Gimsteinn eru reynt par og voru meðal annars í A-úrslitum í fimmgangi á Íslandsmótinu í Hafnarfirði fyrr í sumar. Keppa í F1.


Sigurður Narfi Birgisson (Þýskalandi) og Randver frá Þóroddsstöðum. Siggi og Randver eru ríkjandi þýskir meistarar í 250m skeiði. Keppa í  250m skeiði og 100m skeiði.



Knapar í ungmennaflokki eru:


Fanndís Helgadóttir (Sörla) og Ötull frá Narfastöðum. Fanndís og Ötull hafa um árabil verið meðal sterkustu para landsins í slaktaumatölti og eru fyrrum Íslandsmeistarar í greininni. Keppa í T2 og T1.


Sara Dís Snorradóttir (Sörla) og Nökkvi frá Syðra-Skörðugili. Nökkvi er gamalreyndur höfðingi sem meðal annars hefur unnið B-flokk á Landsmóti og þau Sara hafa verið feikna sterk saman í greininni. Keppa í B flokki ungmenna og T1.


Hekla Rán Hannesdóttir (Spretti) og Tindur frá Árdal. Hekla og Tindur þekkjast vel og hafa náð góðum árangri í keppni saman og voru meðal annars í B-úrslitum í B-flokki ungmenna á LM. Keppa í  B-flokki ungmenna, T1 og V1.


Jón Ársæll Bergmann (Geysi) og Viskusteinn frá Íbishóli. Jón Ársæll er ríkjandi þrefaldur heimsmeistari í ungmennaflokki. Þeir Viskusteinn hafa verið sterkir í T2 og gæðingakeppni.  Keppa í B flokki ungmenna, T1 og T2.


Eva Kærnested (Fáki) og Logi frá Lerkiholti. Eva og Logi eru reynt keppnispar með úrslitasæti á Íslandsmótum í farteskinu í tölti og fjórgangi ungmenna.  Keppa í V1 og T1.


Dagur Sigurðsson (Geysi) og Galbjartur frá Hóli. Dagur  er ríkjandi Íslandsmeistari í 100m skeiði ungmenna og eldfljótur skeiðknapi. Keppa í 250m skeið og 100m skeið.


Elva Rún Jónsdóttir (Spretti) og Kvasir frá Steinnesi. Elva Rún er ríkjandi Íslandsmeistari í T1 unglinga og hefur náð frábærum árangri undanfarin ár. Keppa í T1 og V1.


Guðný Dís Jónsdóttir (Spretti) og Laki fran Adalgården. Ríkjandi Íslandsmeistari í gæðingaskeiði ungmenna og hefur verið fyrnasterk í ýmsum greinum undanfarin ár. Keppa í T1 og V1.


Kristín Eir Hauksdóttir Holaker (Borgfirðingi) og Engill frá Ytri-Bægisá. Kristín er fyrrum Landsmótsmeistari og gríðarsterkur knapi. Engill er reyndur keppnishestur í fimmgangsgreinum. Keppa í F1, T2, PP1 og A flokki ungmenna.


Elísabet Líf Sigvaldadóttir (Geysi) og Dyggur från Stummelbo. Elísabet Líf er ríkjandi Íslandsmeistari í T2 unglinga – Keppa í T1.


Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal (Þyt), Leikur frá Lækjamóti og Arthúr frá Baldurshaga. Guðmar er sjóðheitur knapi þetta árið, hann er þrefaldur Íslandsmeistari og tvöfaldur Landsmótsmeistari. Keppir á Leik í A-flokki ungmenna og Arthúr frá Baldurshaga í B flokki ungmenna, V1, T1, T2.


Þórgunnur Þórarinsdóttir (Skagfirðingi) og Tófa Þorvarsdottir från Stall Vitavillan. Þórgunnur er silfurhafi í fimmgangi frá því á HM 2025 og er eitursterk í fimmgangsgreinum. Keppa í  F1, T1, PP1 og 250m skeiði.



Knapar í unglingaflokki eru:


Viktor Arnbro Þórhallson (Funa) og Ársól från Stensäter. Þrátt fyrir ungan aldur er Viktor farinn að láta að sér kveða með góðum sýningum á fimmgangsvængnum í unglingaflokki og Ársól er sterk hryssa í þeim greinum einnig. Keppa í F1, T1, PP1 og 100m skeiði.


Elísabet Benediktsdóttir (Sörla) og Mio från Änghaga. Elísabet er öflugur knapi í unglingaflokki og hefur náð frábærum árangri í flestum greinum í barna- og unglingaflokki. Keppa í T2, V1 og T1 unglinga.


Elísabet Líf Sigvaldadóttir (Geysi) og Dyggur från Stummelbo. Elísabet Líf er ríkjandi Íslandsmeistari í T2 unglinga og reyndur knapi í flestum greinum í unglingaflokki. Keppa í unglingaflokk gæðinga.



Það er sannarlega ánægjulegt að sjá hvað margir sterkir hestar frá Íslandi voru í boði fyrir Norðurlandamót í þetta sinn en í heildina verða 8 hross flutt út frá Íslandi til að taka þátt. Þar að auki koma inn í liðið knapar sem hafa náð góðum árangri með sína hesta erlendis og öflugur hópur ungra knapa sem fá góða hesta lánaða til að taka þátt. Þarna má til dæmis nefna ríkjandi heimsmeistara í skeiðgreinum ungmenna frá í Sviss síðastliðið sumar, fyrrverandi heimsmeistara í PP1 og 250 metra skeiði, ríkjandi þýskan meistara í 250 metra skeiði og fleira. 


Næstu dagar fara í undirbúning fyrir útflutning og ferðalag hesta og að stilla saman strengi á nýjum hestum sem eru erlendis.


Það verður spennandi að fylgjast með mótinu en það verður sýnt í beinni útsendingu á Eiðfaxa TV ásamt því að mótinu verður gerð góð skil á samfélagsmiðlum Landssambandsins. 


Við óskum landsliðsknöpum og teyminu góðs gengis.










Fréttasafn

19. október 2026
Kjörne fnd birtir lista yfir þá sem gefa kost á sér til stjórnarsetu LH næstu tvö árin. Framboðsfrestur var til föstudags 16. október sl. Stjórn LH fer með æðsta vald í málefnum sambandsins milli þinga. Stjórnin skal skipuð sjö mönnum, formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum. Varastjórn skal skipuð fimm mönnum. Kjörtímabil er til tveggja ára. Framboð til stjórnar Landssambands hestamannafélaga 2026-2028 Til formanns Linda Björk Gunnlaugsdóttir, Hestamannafélaginu Spretti Til aðalstjórnar: Þórhildur Katrín Stefánsdóttir, Hestamannafélaginu Glampa Unnur Sigurpálsdóttir (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Skagfirðingi Sóley Margeirsdóttir (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Geysi Sigurbjörn Eiríksson, Hestamannafélaginu Spretti Ragnhildur Gísladóttir (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Ljúfi Ólafur Gunnarsson, Hestamannafélaginu Jökli Jón Þorberg Steindórsson (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Geysi Til varastjórnar Reynir Atli Jónsson, Hestamannafélaginu Freyfaxa Hilmar Guðmannsson, Hestamannafélaginu Fáki Skv. gr. 4.6 í lögum LH er kjörnefnd heimilt að samþykkja framboð sem koma fram eftir að framboðsfresti lýkur, enda hafi ekki komið fram nægur fjöldi frambjóðenda. Nú háttar svo til að ekki hafa jafn margir boðið sig fram í varastjórn og kjósa skal og er því opið fyrir framboð í varastjórn og skulu þau berast til formanns kjörnefndar á netfangið ( atli@landlogmenn.is ).
15. október 2026
Hvað er Landsmót og fyrir hverja er það?
13. október 2026
Gríðarlega sterk keppnispör í öllum greinum
8. október 2026
Hörð samkeppni um HM sæti
7. október 2026
Erlendur Árnason járningamaður verður hluti af landsliðsteyminu í fram yfir HM 2027
5. október 2026
65. landsþing LH verður haldið í Hveragerði 30. til 31. október 2026. Kjörnefnd LH vekur athygli á að þau sem hyggjast gefa kost á sér til stjórnarsetu tilkynni framboð sitt til nefndarinnar eigi síðar en tveimur vikum fyrir landsþing (sjá grein 4.6 í lögum LH). Framboðsfrestur er til miðnættis 16. október . Stjórn LH fer með æðsta vald í málefnum sambandsins milli þinga. Stjórnin skal skipuð sjö mönnum, formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum. Varastjórn skal skipuð fimm mönnum og taka þeir sæti í aðalstjórn í samræmi við atkvæðahlutfall. Kjörtímabil er til tveggja ára. Kjörgengir í stjórn eru allir félagar í hestamannafélögum sem eru aðilar að LH. Kjörnefnd hvetur þá sem áhuga hafa á að starfa í stjórn LH (stjórn eða varastjórn) að tilkynna framboð fyrir tilsettan tíma til kjörnefndar. Kjörnefnd skipa: Atli Már Ingólfsson, formaður ( atli@landlogmenn.is ) Jón Geir Sigurbjörnsson (jongeir@gmail.com) Hafrún Hlín Magnúsdóttir (hafrunhlin@gmail.com) Samkvæmt lögum LH, (grein 4.6 Kosning stjórnar), birtir kjörnefnd hér lista yfir þá einstaklinga sem sitja í stjórn og gefa kost á sér áfram. Til formanns Linda Björk Gunnlaugsdóttir Til aðalstjórnar: Jón Þorberg Steindórsson og til vara í varastjórn Ólafur Gunnarsson Ragnhildur Gísladóttir og til vara í varastjórn Sigurbjörn Eiríksson Sóley Margeirsdóttir og til vara í varastjórn Unnur Sigurpálsdóttir og til vara í varastjórn Þórhildur Katrín Stefánsdóttir Til varastjórnar Hilmar Guðmannsson Reynir Atli Jónsson
2. október 2026
Menntaráðstefna FEIF og LH var haldin í Skagafirði dagana 23. til 25. september. Ráðstefnan var mjög vel sótt, en þátttakendur voru um 120 og komu víða að úr heiminum. Meginþema ráðstefnunnar var „transitions“ eða skiptingar af öllu tagi - gangskiptingar, gangsetning, hraðabreytingar, upphaf skeiðþjálfunar og niðurtaka á skeið í keppni ásamt umfjöllun um velferð keppnishesta. Aðalkennarar og fyrirlesarar ráðstefnunnar voru Eyjólfur Ísólfsson, Árni Björn Pálsson, Mette Mannseth, Þórarinn Eymundsson, Ísólfur Líndal Þórisson, Þorsteinn Björnsson og Sigríður Björnsdóttir. Þar að auki tóku nemendur Háskóla Íslands á Hólum þátt í ráðstefnunni ásamt skólahestunum og reiðkennurum skólans. Þátttakendur höfðu tækifæri til að senda spurningar til kennara og fyrirlesara en þátttakendur nýttu það tækifæri vel. Þar að auki var þátttakendum skipt upp í umræðuhópa og daglega hittust hóparnir til að ræða fyrirfram ákveðin umræðuefni sem endurspegluðu viðfangsefni ráðstefnunnar. Ráðstefnunni lauk á líflegum pallborðsumræðum þar sem kennarar og fyrirlesarar sátu fyrir svörum. Mikil ánægja var á meðal þátttakenda með menntaráðstefnuna, erindin voru fjölbreytt og mjög áhugaverð. Það var menntanefnd LH sem átti veg og vanda að allri skipulagningu viðburðarins og eru þeim færðar miklar þakkir fyrir. Menntanefnd LH skipa Mette Mannseth formaður, Friðdóra Friðriksdóttir, Herdís Reynisdóttir, Karen Woodrow, Magnús Lárusson, Reynir Atli Jónsson og Sylvía Sigurbjörnsdóttir.
17. september 2026
Hæfileikamótun LH er fyrir unglinga fædd 2010-2013
16. september 2026
Vigdís Matthíasdóttir er nýr yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH
14. september 2026
Íslandsmót og Áhugamannamót eru auglýst til umsóknar
Lesa meira