LH auglýsir eftir starfsmanni á skrifstofu

13. mars 2026

 Í boði er fjölbreytt og spennandi starf í skemmtilegu og lifandi umhverfi

Landssambands hestamannafélaga auglýsir eftir starfsmanni á skrifstofu. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi í 50-60% starfshlutfall. Í boði er fjölbreytt og spennandi starf í skemmtilegu og lifandi umhverfi í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.


Helstu verkefni

  • Tekur við almennum fyrirspurnum um allt sem viðkemur almennri hestamennsku og mótahaldi og kemur í ferli
  • Umsjón með vefsíðu og samfélagsmiðlum 
  • Heldur utan um helstu verkefni er varða mótamál innan LH
  • Kemur að skipulagningu viðburða á vegum LH
  • Er starfsmaður keppnisnefndar, dómaranefndar og útbreiðslunefndar LH
  • Önnur tilfallandi verkefni


Reynsla

  • Áhugi og góð þekking á almennri hestamennsku
  • Áhugi og góð þekking á keppnisreglum og mótahaldi
  • Reynsla af vefumsjón og samfélagsmiðlum
  • Önnur reynsla sem nýtist í starfi


Hæfniskröfur

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og skipulagshæfni
  • Jákvætt hugarfar
  • Frumkvæði, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð skilyrði
  • Góð íslensku- og enskukunnátta og gott vald á rituðu máli
  • Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi


Umsóknir skal senda á netfangið lh@lhhestar.is. Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf.

Umsóknarfrestur er til og með 31. mars nk.

Frekari upplýsingar veitir Berglind Karlsdóttir framkvæmdastjóri LH, s. 514 4030 berglind@lhhestar.is.



Fréttasafn

10. júní 2026
Lágmörk inn á Íslandsmót lækkuð
1. júní 2026
Skógarhólar hinn geysivinsæli áningarstaður hestamanna í þjóðgarðinum á Þingvöllum hefur fengið góða andlitslyftingu á síðustu misserum.
29. maí 2026
Stefna Landssambands hestamannafélaga 2026-2030
29. maí 2026
LH gerir tímamótasamning við HorseDay!
22. maí 2026
Borið hefur á mistúlkun á reglum um val þátttakenda á Landsmót og fjórðungsmót, að allir sem skráðir séu í úrtöku eigi rétt á að vera fulltrúi síns félags á Landsmóti eða fjórðungsmóti, en reglan er þannig að ljúka þarf gildri sýningu í úrtöku síns félags til að eiga rétt á sæti. Til að fyrirbyggja þennan misskiling lagði keppnisnefnd til við stjórn LH að gerð yrði breyting á orðalagi í gr. 5 um val keppenda á Landsmót í reglugerð um Landsmót og fjórðungsmót, breytingin á orðalagi er feitletruð: 5. Val hrossa og keppenda á Landsmót og fjórðungsmót Þátttakendafjöldi á lands- og fjórðungsmóti miðast við fjölda félagsmanna sem skráðir eru í félagatali hestamannafélaga þann 15. apríl ár hvert. Val hrossa í gæðingakeppni og keppenda í barna-, unglinga- og ungmennakeppni á lands- og fjórðungsmótum skal fara fram á úrtökumótum hjá félögunum eftir lögum og reglum LH um gæðingakeppni og barna- unglinga- og ungmennakeppni. Til að eiga möguleika á að öðlast þátttökurétt á Landsmóti þarf að ljúka gildri sýningu í úrtöku hestamannafélags. Stjórn samþykkti ofangreinda orðalagsbreytingu með vísan í gr. 10.4 í lögum LH um heimild stjórnar til að breyta reglugerðum milli landsþinga.
22. maí 2026
Eins og áður hefur verið kynnt á heimasíðu LH voru nokkrar breytingar gerðar á keppnisreglum LH sem tóku gildi 1. apríl sl, sjá nánar hér . Stærsta breytingin var ný og endurskoðuð reglugerð um spjaldanotkun . Vakin er athygli á því að samkvæmt reglugerðinni hlýtur knapi sem fær þrisvar sinnum tvö (eða fleiri) gul spjöld í sýningum þriggja vikna keppnisbann. Keppnisbann hefst við upphaf þess móts þegar knapi hlýtur tvö gul spjöld (eða fleiri) í þriðja sinn á sama almanaksári. Jafnframt hlýtur knapi sem fær tvisvar sinnum tvö (eða fleiri) rauð spjöld í sýningu keppnisbann í 3 vikur. Keppnisbann hefst við upphaf þess móts þegar knapi hlýtur tvö rauð spjöld (eða fleiri) í annað sinn á sama almanaksári og allur árangur knapans á því móti þurrkast út. Að auki er heimilt að úrskurða keppnisbann hljóti knapi tvö (eða fleiri) rauð spjöld í sýningu en í þeim tilvikum er lengd keppnisbanns ákvörðuð af úrskurðar- og aganefnd LH. Áminningar og keppnisbönn eru skráð og birt á heimasíðu LH og tilkynnt til FEIF innan tiltekins tíma. Gul og rauð spjöld sem gefin eru fylgja knapa yfir keppnistímabilið og leiða ítrekuð brot til keppnisbanns eins og farið er yfir er hér að ofan.
21. maí 2026
Á vef LH er komin ný undirsíða sem heitir „Algengar spurningar um mótahald“.
18. maí 2026
Reiðkennarar, dómarar og annað fagfólk í hestamennsku athugið!
14. maí 2026
Miðvikudaginn 20. maí verður haldið námskeið fyrir þá aðila sem hafa hug á að sinna hlaupagæslu í kappreiðum á árinu 2026. Hídí og LH standa að námskeiðinu saman og það er haldið í fjarkennslu á Teams og hefst klukkan 20:00. Samkvæmt reglum um kappreiðar þurfa hlaupagæslumenn í kappreiðaskeiði að vera viðurkenndir af Landssambandi hestamannafélaga og komast þar með á lista yfir viðurkennda hlaupagæslumenn. Farið verður yfir hlutverk og ábyrgð hlaupagæslumanna, helstu reglur kappreiða, siðareglur og fleira ásamt því að skoða skeiðspretti. Dómarar með gild dómararéttindi Gdlh og kynbótadómarar eru samþykktir af LH sem hlaupagæslumenn og þurfa því ekki að taka námskeiðið til þess að vera á listanum. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa brennandi áhuga á kappreiðum og góða þekkingu á gangtegundum. Til þess að taka þátt á námskeiðinu þarf að skrá sig með því að senda tölvupóst á katla@lhhestar.is . Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.
11. maí 2026
Skráning á Menntaráðstefnu FEIF og LH í lok september er í fullum gangi.
Lesa meira