Allra sterkustu - takið daginn frá!

20. mars 2026

Mikilvægasti fjáröflunarviðburður landsliðsins Allra sterkustu fer fram laugardaginn 4. apríl!

Mikilvægasti fjáröflunarviðburður landsliðsins, Allra sterkustu fer fram laugardaginn 4. apríl næstkomandi. Ekki missa af frábæru kvöldi með okkar allra sterkustu knöpum í frábærri stemningu í glænýrri og glæsilegri reiðhöll á Sörlastöðum í Hafnarfirði.


Dagskráin verður skemmtileg en meðal annars munu landsliðsknapar keppa til úrslita í tölti, fjórgangi og fimmgangi, stóðhestar og hryssur verða sýndar og U21 verður með glæsilega skrautreið.


Þá má ekki gleyma hinu geysivinsæla happadrætti þar sem til mikils er að vinna og rúsínunni í pylsuendanum – STÓÐHESTAVELTAN, en hver veit nema úr henni verði til framtíðar heimsmeistari?


Ekki láta þitt eftir liggja, komdu og njóttu gleðinnar og hjálpaðu liðinu að komast einu skrefi nær Gullinu á NM í Svíþjóð!

Miðasala hefst 24. mars í vefverslun LH!


Fréttasafn

31. október 2026
Ný stjórn LH kjörin á Landsþingi
31. október 2026
Ragnhildur Gísladóttir dregur framboð til aðalstjórnar til baka
31. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Þórhildur Katrín Stefánsdóttir – Hestamannafélagið Hornfirðingur
30. október 2026
Eftirfarandi framboð til varastjórnar bárust kjörnefnd
29. október 2026
Valnefnd óskar eftir keppnisárangri ræktunarbúa
29. október 2026
Framboð í varastjórn LH 2026 – 2028 Hilmar Guðmannsson – Hestamannafélagið Fákur
29. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Ragnhildur Gísladóttir – Hestamannafélagið Ljúfur
28. október 2026
Framboð í varastjórn LH 2026 – 2028 Reynir Atli Jónsson – Hestamannafélagið Freyfaxi
27. október 2026
Hugrenningar formanns LH, Lindu B. Gunnlaugsdóttur
27. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Jón Þorberg Steindórsson – Hestamannafélagið Geysir
Lesa meira