Loksins koma þau norður

18. mars 2024

Sýnikennsla 3. árs nema við Háskólann á Hólum í reiðhöllini á Akureyri, laugardaginn 23. mars.

Yfirskrift sýningarinnar er fjölbreytni í þjálfun hesta. 16 reiðkennaraefni hestafræðideildar Háskólans á Hólum hafa í námi sínu skoðað, gert tilraunir og leikið sér með ótal þjálfunarleiðir hesta. Þau hafa með vinnu sinni öðlast víðtæka þekkingu á mismunandi aðferðum í uppbyggingu hesta, hvernig viðhalda skal gleði og samstarfsvilja á sama tíma og hesturinn styrkist og eflist.

Einstakt tækifæri til að fá nýjar hugmyndir, þróa með því eigin færni, auka þekkingu og efla samstarfið við hestinn. Spennandi sýnikennsla með ólíkar hestgerðir. Verið tilbúin fyrir töltgæði, frábæra skeiðspretti, hjartsláttarmælingar, slaktaumatölt, frjálsa vinnu frá jörðu (liberty work) og margt fleira.

Húsið opnar kl. 14:30 og sýnikennslan hefst kl. 15.

 

Við hlökkum til að sjá ykkur.

3. árs nemar Háskólans á Hólum

Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Lesa meira