Ný stjórn LH 2022-2024

6. nóvember 2022

Á landsþingi LH 2022 sem fór fram helgina 4.-5. nóvember, var kjörin stjórn til næstu tveggja ára. 

Stjórn LH 2022-2024 skipa:

  • Guðni Halldórsson, Herði, formaður
  • Edda Rún Ragnarsdóttir, Fáki
  • Ólafur Gunnarsson, Jökli
  • Hákon Hákonarson, Herði
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir, Hornfirðingi
  • Unnur Rún Sigurpálsdóttir, Skagfirðingi
  • Sóley Margeirsdóttir, Geysi

1. varamaður Gróa Baldvinsdóttir, Fáki
2. varamaður Randi Holaker, Borgfirðingi
3. varamaður Sveinn Heiðar Jóhannesson, Sörla
4. varamaður Birna Tryggvadóttir, Létti
5. varamaður Valdimar Magnús Ólafsson, Dreyra

Kosið var á milli tólf öflugra frambjóðenda um sex sæti í aðalstjórn og fóru úrslit þannig:

Ágúst Hafsteinsson, Hestamannafélaginu Sleipni - 29 atkvæði
Edda Rún Ragnarsdóttir, Hestamannafélaginu Fáki - 140 atkvæði
Hákon Hákonarson, Hestamannafélaginu Herði - 106 atkvæði
Jón Þorberg Steindórsson, Hestamannafélaginu Geysi – 21 atkvæði
Ólafur Gunnarsson, Hestamannafélaginu Jökli  – 132 atkvæði
Randi Holaker, Hestamannafélaginu Borgfirðingi – 80 atkvæði
Siguroddur Pétursson, Hestamannafélaginu Snæfellingi – 49 atkvæði
Sóley Margeirsdóttir, Hestamannafélaginu Geysi - 91 atkvæði
Sveinn Heiðar Jóhannesson, Hestamannafélaginu Sörla – 52 atkvæði
Unnur Rún Sigurpálsdóttir, Hestamannafélaginu Skagfirðingi – 92 atkvæði
Valdimar Magnús Ólafsson – Hestamannafélaginu Dreyra - 19 atkvæði
Þórhildur Katrín Stefánsdóttir, Hestamannafélaginu Hornfirðingi – 97 atkvæði

Níu buðu sig fram til varastjórnar en hana skipa fimm manns og fóru úrslit þannig:

Ágúst Hafsteinsson, Hestamannafélaginu Sleipni - 50 atkvæði
Birna Tryggvadóttir, Hestamannafélaginu Létti - 83 atkvæði
Gróa Baldvinsdóttir, Hestamannafélaginu Fáki - 113 atkvæði
Jón Þorberg Steindórsson, Hestamannafélaginu Geysi - 41 atkvæði
Ólafur Þórisson, Hestamannafélaginu Geysi - 63 atkvæði
Randi Holaker, Hestamannafélaginu Borgfirðingi - 111 atkvæði
Siguroddur Pétursson, Hestamannafélaginu Snæfellingi - 66 atkvæði
Sveinn Heiðar Jóhannesson, Hestamannafélaginu Sörla - 89 atkvæði
Valdimar Magnús Ólafsson, Hestamannafélaginu Dreyra - 69 atkvæði

Ekki var kosið um formann þar sem Guðni Halldórsson, sitjandi formaður var einn í framboði.

Við óskum nýkjörinni stjórn innilega til hamingju og þökkum fráfarandi stjórn þeirra störf.

 

 

 

 

 

Fréttasafn

16. nóvember 2026
Styttist í uppskeruhátíð
13. nóvember 2026
Hestamannafélagið Sleipnir mun halda Íslandsmót fullorðinna og ungmenna 16.-20. júní 2027
11. nóvember 2026
Allir í Samskipahöllina annað kvöld
10. nóvember 2026
Knapar ársins verða heiðraðir á Uppskeruhátíð hestafólks
6. nóvember 2026
Heiðursviðurkenningar ÍSÍ veittar á Landsþingi LH
5. nóvember 2026
Gullmerki veitt á Landsþingi
3. nóvember 2026
Könnun til félagsmanna
2. nóvember 2026
Að loknu hverju landsþingi skipar stjórn Landssambands hestamannafélaga í nefndir sambandsins til tveggja ára. Nefndarstörf eru undirstaðan í öllu starfi LH og mikilvægt að fá öfluga sjálfboðaliða sem eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum. Nefndastarf á vegum LH er skemmtilegt og fræðandi, auk þess sem störf í nefndum eru gefandi og til þess fallin að efla tengslanet nefndafólks. Ef þú ert tilbúin/n til að starfa í nefnd hjá LH þá sækir þú um á sértöku umsóknareyðublaði . Frestur til að gefa kost á sér í nefndastörf LH er 20. nóvember. Nefndirnar sem um ræðir eru: Keppnisnefnd Keppnisnefnd fjallar um mál sem stjórn LH vísar til hennar en hefur að öðru leyti frumkvæðisrétt að málefnum sem undir hana heyra. Hlutverk nefndarinnar er að bæta reglur er viðkoma keppni í hestamennsku, þannig að þær séu einfaldar, skiljanlegar og skýrar. Laganefnd Hlutverk nefndarinnar er að að bæta regluverk LH, þannig að það sé einfalt, skiljanlegt og skýrt og vera stjórn til ráðgjafar er varðar túlkun á lögum og reglum LH. Nefndin sér einnig um að breytingar á lögum og reglum sem samþykktar eru á FEIF-þingi og landsþingi LH séu rétt færð inn í lög og reglur LH og fara yfir tillögur til landsþings. Landsliðs- og afreksnefnd Hlutverk landsliðs- og afreksnefndar er að móta umgjörð um afreksmál LH og halda utan um landsliðshópa og hæfileikamótun LH. Nefndin er einnig fjáröflunarnefnd fyrir afreksstarf LH. Nefndin skipuleggur landsliðsferðir og fylgir eftir landsliðum Íslands í hestaíþróttum á HM og NM. Mannvirkjanefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera ráðgefandi varðandi gerð og notkun mannvirkja á hestaíþróttasvæðum hestamannafélaganna. Einnig ber nefndinni að vera stjórn innan handar varðandi lágmarkskröfur sem gerðar eru til mótshaldara Íslandsmóta og Landsmóta hvað varðar aðstæður á mótssvæði. Menntanefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera sérfræðilegur ráðunautur sambandsstjórnar LH í öllum málefnum er varða fræðslu og menntun. Nefndin heldur utan um endurmenntunarnámskeið fyrir reiðkennara og staðfestir virka reiðkennara til FEIF. Annað hvert ár stendur nefndin fyrir endurmenntunarráðstefnu. Tölvunefnd Hlutverk nefndarinnar er að tryggja aðgengi aðildarfélaga LH að framúrskarandi forriti sem reiknar út niðurstöður móta og birtir niðurstöður á aðgengilegan hátt. Nefndin stuðlar að þróun mótaforrits í samræmi við kröfur samtímans. Úrskurðar- og aganefnd Úrskurðar- og aganefnd LH skal skipuð þremur aðalmönnum og tveimur til vara, formaður skal vera löglærður. Úrskurðar- og aganefnd úrskurðar um brot á lögum, reglugerðum og reglum LH og ákvarðar viðurlög, í samræmi við reglur Úrskurðar- og aganefndar. Æskulýðsnefnd Hlutverk Æskulýðsnefndar er að efla fræðslu um æskulýðsmál, gæta hagsmuna og jafnræðis æskunnar í íþróttinni, auka fræðslu æskulýðsfulltrúa um allt land og styðja við þá í starfi. Nefndin sér einnig um val þátttakenda á FEIF Youth Cup og Youth Camp. Útbreiðslu- og nýliðunarnefnd Hlutverk nefndarinnar er að vinna að útbreiðslu og kynningu á hestaíþróttum og stuðla að jákvæðri ímynd hestaíþrótta. Nefndinni er einnig ætlað að vinna að aukinni útbreiðslu og umfjöllun um hestaíþróttir. Öryggisnefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera vakandi yfir því sem varðar öryggi hestafólks hvort sem er í búnaði hestafólks eða umhverfi hestaíþrótta. Nefndin stuðlar að öryggi á reiðvegum og annars staðar þar sem hestamennska er stunduð og sér um að fræða hinn almenna hestamann um hvernig hægt er að bæta öryggi í nærumhverfi. Ef þú ert tilbúin til að starfa í nefnd hjá LH þá sækir þú um með því að smella hér .
31. október 2026
Ný stjórn LH kjörin á Landsþingi
31. október 2026
Ragnhildur Gísladóttir dregur framboð til aðalstjórnar til baka
Lesa meira