Sindri frá Hjarðartúni og næstu hestar í stóðhestaveltunni

25. mars 2026

Sindri frá Hjarðartúni og næstu hestar í Stóðhestaveltunni

Það styttist í stórsýningu landsliðs Íslands í hestaíþróttum, Allra sterkustu sem haldið verður á Sörlastöðum í Hafnarfirði laugardagskvöldið 4. apríl nk.


Stóðhestavelta landsliðsins verður á sínum stað í tengslum við viðburðinn og um 100 folatollar í pottinum sem stóðhestaeigendur hafa gefið til styrktar landsliðinu. LH þakkar stóðhestaeigendum stuðninginn.


Miðsala í stóðhestaveltunni verður á ALLRA STERKUSTU og á vefnum, miðaverð er 70.000 kr. Einn tollur er á hverjum seldum miða. Athugið að að girðinga-, hús-, eða sæðingagjald er ekki innifalið.


Við kynnum næstu 10 stóðhesta til leiks:

Sindri frá Hjarðartúni 8,99

Roði frá Lyngholti 8,69

Kolgrímur frá Breiðholti Gbr. 8,43

Einir frá Enni 8,30

Eldur frá Bjarghúsum 8,35

Hylur frá Flagbjarnarholti 8,68

Knár frá Ytra-Vallholti 8,47

Sindri frá Lækjamóti II 8,64

Spennandi frá Fitjum 8,35

Kjalar frá Hvammi I 8,37



Fréttasafn

23. júní 2026
Ingimar Sveinsson, heiðursfélagi og gullmerkishafi Landssambands hestamannafélaga er látinn, 98 ára að aldri. Ingimar var hestamaður, bóndi, kennari og frumkvöðull í hestvænum tamningaraðferðum hérlendis. Ingimar fæddist 27. febrúar 1928 á Egilsstöðum á Fljótsdalshéraði og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Sveinn Jónsson, bóndi og oddviti á Egilsstöðum, og Sigríður Fanney Jónsdóttir, húsfreyja og hótelhaldari á Egilsstöðum. Ingimar lauk stúdentsprófi frá MA 1948, BSc.-prófi í búvísindum frá Washington State University, Pullman í Washington-ríki í Bandaríkjunum 1952, dvaldi við nám í Danmörku sumarið 1986, í Þýskalandi 1993 og í Kanada og Bandaríkjunum 1995. Ingimar var bóndi á Egilsstöðum (á Egilsstaðabúinu) 1952-86 en gerðist kennari við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, m.a. í hrossarækt og tamningum, frá ársbyrjun 1986 til vors 1998. Jafnframt stundaði hann þar tilraunir og rannsóknir í hrossarækt. Hann kynnti sér ýmsar erlendar tamningaaðferðir hrossa, sem hann aðlagaði fyrir íslenska hestinn. Ingimar hélt fjölda tamninganámskeiða um allt land og víða erlendis, auk þess að flytja erindi og halda fræðslunámskeið um íslenska hestinn. Ingimar var stofnfélagi Hestamannafélagsins Freyfaxa á Fljótsdalshéraði og sat í stjórn þess í 25 ár, þar af formaður í fimm ár. Hann var stofnfélagi og fyrsti formaður ungmenna- og íþróttafélagsins Hattar á Egilsstöðum. Sat í stjórn Kaupfélags Héraðsbúa, var í nokkur ár formaður Bændafélags Fljótsdalshéraðs, og í stjórn Ræktunarsambands Austur-Héraðs og formaður og framkvæmdastjóri þess um skeið. Ingimar skrifaði fjölda greina í blöð og tímarit og kennslubækur í hrossarækt. Ritaði einnig bókina Hrossafræði Ingimars, sem var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Hagþenkis árið 2010. Landssamband hestamannafélaga vottar fjölskyldu og vinum Ingimars samúð.
22. júní 2026
Skráning opin til miðnættis 23.júní
19. júní 2026
Fyrstu Íslandsmeistarnir hafa verið krýndir á Íslandsmótinu sem fram fer á Sörlastöðum í Hafnarfirði.
19. júní 2026
Hinn geysivinsæli viðburður FEIF Youth Cup (FYCup) 2026 fer að þessu sinni fram í Rieden í Þýskalandi dagana 13. til 19. júlí. Viðburðurinn er fyrir knapa á aldrinum 14-17 ára á árinu sem vilja öðlast keppnisreynslu á erlendri grundu. Áhersla FYCup er á teymisvinnu, íþróttamennsku, bætta reiðfærni og vináttu þvert á menningu. Ísland fer með sjö keppendur á FYCup að þessu sinni : Anita Liv Snævarsdóttir, Ljúfi Aníta Líf Magnúsdóttir, Herði Jóhanna Dýrleif Guðjónsdóttir, Spretti Rebecca Luise Lehmann, Snæfellingi Sigríður Fjóla Aradóttir, Herði Súsanna Guðlaug Halldórsdóttir, Skagfirðingi Unnur Rós Ármannsdóttir, Háfeti Íslensku keppendurnir fá leigðan hest á meðan á mótinu stendur og hópnum fylgir Dagbjört Hulda Guðbjörnsdóttir formaður Æskulýðsnefndar LH. Undirbúningur ferðarinnar er í fullum gangi og mikil tilhlökkun í hópnum.
16. júní 2026
Pistill frá formanni LH
10. júní 2026
Lágmörk inn á Íslandsmót lækkuð
1. júní 2026
Skógarhólar hinn geysivinsæli áningarstaður hestamanna í þjóðgarðinum á Þingvöllum hefur fengið góða andlitslyftingu á síðustu misserum.
29. maí 2026
Stefna Landssambands hestamannafélaga 2026-2030
29. maí 2026
LH gerir tímamótasamning við HorseDay!
22. maí 2026
Borið hefur á mistúlkun á reglum um val þátttakenda á Landsmót og fjórðungsmót, að allir sem skráðir séu í úrtöku eigi rétt á að vera fulltrúi síns félags á Landsmóti eða fjórðungsmóti, en reglan er þannig að ljúka þarf gildri sýningu í úrtöku síns félags til að eiga rétt á sæti. Til að fyrirbyggja þennan misskiling lagði keppnisnefnd til við stjórn LH að gerð yrði breyting á orðalagi í gr. 5 um val keppenda á Landsmót í reglugerð um Landsmót og fjórðungsmót, breytingin á orðalagi er feitletruð: 5. Val hrossa og keppenda á Landsmót og fjórðungsmót Þátttakendafjöldi á lands- og fjórðungsmóti miðast við fjölda félagsmanna sem skráðir eru í félagatali hestamannafélaga þann 15. apríl ár hvert. Val hrossa í gæðingakeppni og keppenda í barna-, unglinga- og ungmennakeppni á lands- og fjórðungsmótum skal fara fram á úrtökumótum hjá félögunum eftir lögum og reglum LH um gæðingakeppni og barna- unglinga- og ungmennakeppni. Til að eiga möguleika á að öðlast þátttökurétt á Landsmóti þarf að ljúka gildri sýningu í úrtöku hestamannafélags. Stjórn samþykkti ofangreinda orðalagsbreytingu með vísan í gr. 10.4 í lögum LH um heimild stjórnar til að breyta reglugerðum milli landsþinga.
Lesa meira