Stóðahestaveltan - skemmtilegasta fjáröflunin!

23. mars 2026

Stóðhestaveltan - skemmtilegasta fjáröflun sem um getur

Stórsýning landsliðs Íslands í hestaíþróttum, Allra sterkustu , verður haldið í nýrri og glæsilegri reiðhöll Hestamannafélagsins Sörla í Hafnarfirði laugardagskvöldið 4. apríl nk.


Stóðhestavelta landsliðsins verður á sínum stað í tengslum við viðburðinn og um 100 folatollar í pottinum sem stóðhestaeigendur hafa gefið til styrktar landsliðinu. LH þakkar stóðhestaeigendum stuðninginn.


Miðsala í stóðhestaveltunni verður á ALLRA STERKUSTU og í vefverslun LH, miðaverð er 70.000 kr. Einn tollur er á hverjum seldum miða. Athugið að að girðinga-, hús-, eða sæðingagjald er ekki innifalið.


Við kynnum til leiks fyrstu hestana í Stóðhestaveltu landsliðsins 2026:

Þráinn frá Flagbjarnarholti 8,95

Valíant frá Garðshorni á Þelamörk 8,66

Sólstafur frá Bakkakoti 8,43

Abel frá Skáney 8,40

Skugga-Sveinn frá Austurhlíð 2 8,58

Hraunar frá Litla-Garði 8,13

Ljósvaki frá Valstrýtu 8,54

Hengill frá Hestkletti 8,40

Feykir frá Stóra-Vatnsskarði 8,57

Hvarmur frá Brautarholti 8,28


Fréttasafn

22. júní 2026
Skráning opin til miðnættis 23.júní
19. júní 2026
Fyrstu Íslandsmeistarnir hafa verið krýndir á Íslandsmótinu sem fram fer á Sörlastöðum í Hafnarfirði.
19. júní 2026
Hinn geysivinsæli viðburður FEIF Youth Cup (FYCup) 2026 fer að þessu sinni fram í Rieden í Þýskalandi dagana 13. til 19. júlí. Viðburðurinn er fyrir knapa á aldrinum 14-17 ára á árinu sem vilja öðlast keppnisreynslu á erlendri grundu. Áhersla FYCup er á teymisvinnu, íþróttamennsku, bætta reiðfærni og vináttu þvert á menningu. Ísland fer með sjö keppendur á FYCup að þessu sinni : Anita Liv Snævarsdóttir, Ljúfi Aníta Líf Magnúsdóttir, Herði Jóhanna Dýrleif Guðjónsdóttir, Spretti Rebecca Luise Lehmann, Snæfellingi Sigríður Fjóla Aradóttir, Herði Súsanna Guðlaug Halldórsdóttir, Skagfirðingi Unnur Rós Ármannsdóttir, Háfeti Íslensku keppendurnir fá leigðan hest á meðan á mótinu stendur og hópnum fylgir Dagbjört Hulda Guðbjörnsdóttir formaður Æskulýðsnefndar LH. Undirbúningur ferðarinnar er í fullum gangi og mikil tilhlökkun í hópnum.
16. júní 2026
Pistill frá formanni LH
10. júní 2026
Lágmörk inn á Íslandsmót lækkuð
1. júní 2026
Skógarhólar hinn geysivinsæli áningarstaður hestamanna í þjóðgarðinum á Þingvöllum hefur fengið góða andlitslyftingu á síðustu misserum.
29. maí 2026
Stefna Landssambands hestamannafélaga 2026-2030
29. maí 2026
LH gerir tímamótasamning við HorseDay!
22. maí 2026
Borið hefur á mistúlkun á reglum um val þátttakenda á Landsmót og fjórðungsmót, að allir sem skráðir séu í úrtöku eigi rétt á að vera fulltrúi síns félags á Landsmóti eða fjórðungsmóti, en reglan er þannig að ljúka þarf gildri sýningu í úrtöku síns félags til að eiga rétt á sæti. Til að fyrirbyggja þennan misskiling lagði keppnisnefnd til við stjórn LH að gerð yrði breyting á orðalagi í gr. 5 um val keppenda á Landsmót í reglugerð um Landsmót og fjórðungsmót, breytingin á orðalagi er feitletruð: 5. Val hrossa og keppenda á Landsmót og fjórðungsmót Þátttakendafjöldi á lands- og fjórðungsmóti miðast við fjölda félagsmanna sem skráðir eru í félagatali hestamannafélaga þann 15. apríl ár hvert. Val hrossa í gæðingakeppni og keppenda í barna-, unglinga- og ungmennakeppni á lands- og fjórðungsmótum skal fara fram á úrtökumótum hjá félögunum eftir lögum og reglum LH um gæðingakeppni og barna- unglinga- og ungmennakeppni. Til að eiga möguleika á að öðlast þátttökurétt á Landsmóti þarf að ljúka gildri sýningu í úrtöku hestamannafélags. Stjórn samþykkti ofangreinda orðalagsbreytingu með vísan í gr. 10.4 í lögum LH um heimild stjórnar til að breyta reglugerðum milli landsþinga.
22. maí 2026
Eins og áður hefur verið kynnt á heimasíðu LH voru nokkrar breytingar gerðar á keppnisreglum LH sem tóku gildi 1. apríl sl, sjá nánar hér . Stærsta breytingin var ný og endurskoðuð reglugerð um spjaldanotkun . Vakin er athygli á því að samkvæmt reglugerðinni hlýtur knapi sem fær þrisvar sinnum tvö (eða fleiri) gul spjöld í sýningum þriggja vikna keppnisbann. Keppnisbann hefst við upphaf þess móts þegar knapi hlýtur tvö gul spjöld (eða fleiri) í þriðja sinn á sama almanaksári. Jafnframt hlýtur knapi sem fær tvisvar sinnum tvö (eða fleiri) rauð spjöld í sýningu keppnisbann í 3 vikur. Keppnisbann hefst við upphaf þess móts þegar knapi hlýtur tvö rauð spjöld (eða fleiri) í annað sinn á sama almanaksári og allur árangur knapans á því móti þurrkast út. Að auki er heimilt að úrskurða keppnisbann hljóti knapi tvö (eða fleiri) rauð spjöld í sýningu en í þeim tilvikum er lengd keppnisbanns ákvörðuð af úrskurðar- og aganefnd LH. Áminningar og keppnisbönn eru skráð og birt á heimasíðu LH og tilkynnt til FEIF innan tiltekins tíma. Gul og rauð spjöld sem gefin eru fylgja knapa yfir keppnistímabilið og leiða ítrekuð brot til keppnisbanns eins og farið er yfir er hér að ofan.
Lesa meira