Vilt ÞÚ læra meira um gangskiptingar, gangsetningu og hraðabreytingar?

23. mars 2026

FEIF og LH halda Menntaráðstefnu í Skagafirði 23. – 25. sept. 2026

Menntanefndir FEIF og LH halda Menntaráðstefnu í Skagafirði 23. – 25. september 2026…dagana fyrir Laufskálarétt


Staðsetning:  Ráðstefnan fer fram í Skagafirði, bæði í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki og á Hólum í Hjaltadal


Ráðstefnan:

Meginþema ráðstefnunnar er gangskiptingar, gangsetning og hraðabreytingar.

Fræðslan verður í höndum þaulreyndra kennara þar sem þar sem horft verður til skiptinga á milli mismunandi gangtegunda, gangsetningu og skeiðþjálfun ungra hrossa. Einnig verður fjallað um hvernig reiðkennarar nálgast viðfangsefnið með nemendum sínum og hlutverk ásetu í þessum verkefnum. Ráðstefnan mun byggjast upp að mestu leiti á sýnikennslu, umræðum og fyrirlestrum um fræðin sem liggja þar að baki.


Kennarar og fyrirlesarar:

Fjölbreyttur hópur sem skipar heimsmeistara, meistarar FT og sérfræðinga úr fremstu röð. Hópurinn verður kynntur á næstu dögum.

 

Fyrir hverja?

Ráðstefnan er hugsuð fyrir þjálfara og reiðkennara og gildir þátttaka sem símenntun fyrir Menntamatrixu FEIF og LH (16 einingar).

Dómarar sem og aðrir áhugasamir aðilar eru einnig velkomin.


Skráning:

Skráning stendur yfir og lýkur 5. maí.

10% afsláttur fyrir þá sem skrá sig fyrir 7. apríl.

Takmark á fjölda og fyrstir koma fyrstur fær.


Skráning HÉR!


Verð:

Verð er 60.000 kr. fyrir alla ráðstefnuna, miðvikudagseftirmiðdagur til hádegis á föstudegi. Innifalið er hádegismatur og kvöldmatur fimmtudeginum ásamt kaffi og léttum veitingum.

KAUPA MIÐA!


Vinsamlegast sendið kvittun á netfangið: gjaldkeri@lhhestar.is


Gisting:

Þátttakendur sjá sjálfir um gistipláss og gisting er ekki innifalin í ráðstefnugjaldinu.

Eftirfarandi tilboð standa þátttakendum til boða hjá Hótel Tindastóli á Sauðárkróki og er eingöngu hægt að bóka í gegnum eftirfarandi netfang: info@arctichotels.is


Hótel Tindastóll og Tindastóll Annex: Öll herbergi eru með sér baðherbergi og morgunverður innifalinn:

Eins manns herbergi : 26.000 kr. nóttin

Tveggja manna herbergi : 32.000 kr. nóttin

Þriggja manna cottage: 34.000 kr. nóttin

Þriggja manna deluxe : 46.000 kr. nóttin


550 Guesthouse – án morgunverðar.

Eins manns herbergi með sér baði: 15.000 kr. nóttin

Tveggja manna herbergi með sér baði: 19.000 kr. nóttin

Þriggja manna herbergi með sér baði: 23.000 kr. nóttin

Eins manns herbergi með sameiginlegu baði: 12.000 kr. nóttin

Tveggja manna herbergi með sameiginlegu baði: 17.000 kr. nóttin

Þriggja manna herbergi með sameiginlegu baði: 19.000 kr. nóttin


Ferðir:

Þátttakendur sjá um að koma sér til og frá Sauðárkróki en boðið verður upp á rútu á milli Sauðárkróks og Hóla á fimmtudeginum.


Við hlökkum til að sjá ykkur í Skagafirði í lok september! 


Fréttasafn

4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
23. júní 2026
Ingimar Sveinsson, heiðursfélagi og gullmerkishafi Landssambands hestamannafélaga er látinn, 98 ára að aldri. Ingimar var hestamaður, bóndi, kennari og frumkvöðull í hestvænum tamningaraðferðum hérlendis. Ingimar fæddist 27. febrúar 1928 á Egilsstöðum á Fljótsdalshéraði og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Sveinn Jónsson, bóndi og oddviti á Egilsstöðum, og Sigríður Fanney Jónsdóttir, húsfreyja og hótelhaldari á Egilsstöðum. Ingimar lauk stúdentsprófi frá MA 1948, BSc.-prófi í búvísindum frá Washington State University, Pullman í Washington-ríki í Bandaríkjunum 1952, dvaldi við nám í Danmörku sumarið 1986, í Þýskalandi 1993 og í Kanada og Bandaríkjunum 1995. Ingimar var bóndi á Egilsstöðum (á Egilsstaðabúinu) 1952-86 en gerðist kennari við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, m.a. í hrossarækt og tamningum, frá ársbyrjun 1986 til vors 1998. Jafnframt stundaði hann þar tilraunir og rannsóknir í hrossarækt. Hann kynnti sér ýmsar erlendar tamningaaðferðir hrossa, sem hann aðlagaði fyrir íslenska hestinn. Ingimar hélt fjölda tamninganámskeiða um allt land og víða erlendis, auk þess að flytja erindi og halda fræðslunámskeið um íslenska hestinn. Ingimar var stofnfélagi Hestamannafélagsins Freyfaxa á Fljótsdalshéraði og sat í stjórn þess í 25 ár, þar af formaður í fimm ár. Hann var stofnfélagi og fyrsti formaður ungmenna- og íþróttafélagsins Hattar á Egilsstöðum. Sat í stjórn Kaupfélags Héraðsbúa, var í nokkur ár formaður Bændafélags Fljótsdalshéraðs, og í stjórn Ræktunarsambands Austur-Héraðs og formaður og framkvæmdastjóri þess um skeið. Ingimar skrifaði fjölda greina í blöð og tímarit og kennslubækur í hrossarækt. Ritaði einnig bókina Hrossafræði Ingimars, sem var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Hagþenkis árið 2010. Landssamband hestamannafélaga vottar fjölskyldu og vinum Ingimars samúð.
22. júní 2026
Skráning opin til miðnættis 23.júní
Lesa meira