Stórkostleg úrslit í T2 og T1

10. ágúst 2025

Þvílíkur morgunn!!!

Það má sko með sanni segja að loftið hafi verið rafmagnað hér í Swiss í morgun  þegar úrslit í T2 ungmenna fóru fram en þar áttu Íslendingar einn fulltrúa. Lilja Rún Sigurjónsdóttir og Arion frá Miklholti skiluðu frábærri sýningu upp á 7,29 og lönduðu öðru sæti fyrir Íslands hönd. Lilja Rún Sigurjónsdóttir og Arion frá Miklholti voru jöfn Dromelot van Helvoort og Glymjandi frá Íbishóli en sigurinn réðst af sætaröðun dómara.

Að loknum úrslitum í T2 ungmenna var komið að T2 í fullorðinsflokki. Þar áttum við tvo feikna sterka keppendur þær Helgu Unu Björnsdóttur og Ósk frá Stað og Aðalheiði Önnu Guðjónsdóttur og Hulinn frá Breiðstöðum. Þær voru báðar í banastuði og lönduðu fyrsta og öðru sæti! Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Hulinn frá Breiðstöðum sigruðu með yfirburðum með sýningu upp á 8,92 og fengu meðal annars 9,5 frá einum dómara fyrir frjálsa yfirferð á tölti. Frábær árangur hjá Helgu og Aðalheiði.


Tölt ungmenna var næst á dagskrá, úrslitin voru gífurlega sterk og frábærir fulltrúar Íslands mættir. Þær Védís Huld Sigurðardóttir og Ísak frá Þjórsárbakka, Lilja Rún Sigurjónsdóttir og Arion frá Mikholti og Þórgunnur Þórarinsdóttir og Djarfur frá Flatatungu. Védís og Ísak sigruðu töltið og lönduðu þar sínum öðrum heimsmeistaratitli með einkunn upp á 7,50. Þau Lilja og Arion lentu í þriðja sæti og Þórgunnur og Djarfur í því sjötta. Framtíðin er sannarlega björt með þessa sterku ungu knapa.


Þá var loksins komið að þeirri grein sem við Íslendingar bíðum hvað spenntust eftir. Tölti T1 í fullorðinsflokki. Íslendingastúkan var algjörlega smekkfull og eftirvæntingin áþreifanleg. Okkar fulltrúar voru þau Árni Björn Pálsson og Kastanía frá Kvistum og Jóhanna Margrét Snorradóttir og Assa frá Miðhúsum en Jóhanna sigraði töltið með eftirminnilegri sýningu upp á 8,94 á síðustu heimsleikum á Bárði frá Meðalfelli. Fyrir keppnina voru þau Árni Björn Pálsson og Kastanía frá Kvistum talin sigurstranglegust en þau áttu stórsýningu í forkeppninni og fengu þar einkunn upp á 8,80. Þau komu hrikalega einbeitt inn í úrslitin og skiluðu sýningu upp á 8,56 sem dugði þeim til sigurs og hömpuðu hinu eftirsótta tölthorni!! Þvílíkur árangur hjá þessu fallega pari og ákaflega gleðilegt að sjá Árna lyfta tölthorninu fyrir framan þéttsetna áhorfendastúkur. 

Jóhanna og Assa komu bakdyramegin inn í úrslitin í gegnum B-úrslit og sýndu að þau áttu fullt erindi í A-úrslit og skiluðu stórgóðri sýningu og hlutu fyrir hana 7,72 og sjötta sæti. 


Linda Björk Gunnlaugsdóttir, Formaður LH og Willium Þór Þórsson forseti ÍSÍ afhentu tölthornið í T1 fullorðinna.



Fréttasafn

6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
23. júní 2026
Ingimar Sveinsson, heiðursfélagi og gullmerkishafi Landssambands hestamannafélaga er látinn, 98 ára að aldri. Ingimar var hestamaður, bóndi, kennari og frumkvöðull í hestvænum tamningaraðferðum hérlendis. Ingimar fæddist 27. febrúar 1928 á Egilsstöðum á Fljótsdalshéraði og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Sveinn Jónsson, bóndi og oddviti á Egilsstöðum, og Sigríður Fanney Jónsdóttir, húsfreyja og hótelhaldari á Egilsstöðum. Ingimar lauk stúdentsprófi frá MA 1948, BSc.-prófi í búvísindum frá Washington State University, Pullman í Washington-ríki í Bandaríkjunum 1952, dvaldi við nám í Danmörku sumarið 1986, í Þýskalandi 1993 og í Kanada og Bandaríkjunum 1995. Ingimar var bóndi á Egilsstöðum (á Egilsstaðabúinu) 1952-86 en gerðist kennari við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, m.a. í hrossarækt og tamningum, frá ársbyrjun 1986 til vors 1998. Jafnframt stundaði hann þar tilraunir og rannsóknir í hrossarækt. Hann kynnti sér ýmsar erlendar tamningaaðferðir hrossa, sem hann aðlagaði fyrir íslenska hestinn. Ingimar hélt fjölda tamninganámskeiða um allt land og víða erlendis, auk þess að flytja erindi og halda fræðslunámskeið um íslenska hestinn. Ingimar var stofnfélagi Hestamannafélagsins Freyfaxa á Fljótsdalshéraði og sat í stjórn þess í 25 ár, þar af formaður í fimm ár. Hann var stofnfélagi og fyrsti formaður ungmenna- og íþróttafélagsins Hattar á Egilsstöðum. Sat í stjórn Kaupfélags Héraðsbúa, var í nokkur ár formaður Bændafélags Fljótsdalshéraðs, og í stjórn Ræktunarsambands Austur-Héraðs og formaður og framkvæmdastjóri þess um skeið. Ingimar skrifaði fjölda greina í blöð og tímarit og kennslubækur í hrossarækt. Ritaði einnig bókina Hrossafræði Ingimars, sem var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Hagþenkis árið 2010. Landssamband hestamannafélaga vottar fjölskyldu og vinum Ingimars samúð.
22. júní 2026
Skráning opin til miðnættis 23.júní
19. júní 2026
Fyrstu Íslandsmeistarnir hafa verið krýndir á Íslandsmótinu sem fram fer á Sörlastöðum í Hafnarfirði.
19. júní 2026
Hinn geysivinsæli viðburður FEIF Youth Cup (FYCup) 2026 fer að þessu sinni fram í Rieden í Þýskalandi dagana 13. til 19. júlí. Viðburðurinn er fyrir knapa á aldrinum 14-17 ára á árinu sem vilja öðlast keppnisreynslu á erlendri grundu. Áhersla FYCup er á teymisvinnu, íþróttamennsku, bætta reiðfærni og vináttu þvert á menningu. Ísland fer með sjö keppendur á FYCup að þessu sinni : Anita Liv Snævarsdóttir, Ljúfi Aníta Líf Magnúsdóttir, Herði Jóhanna Dýrleif Guðjónsdóttir, Spretti Rebecca Luise Lehmann, Snæfellingi Sigríður Fjóla Aradóttir, Herði Súsanna Guðlaug Halldórsdóttir, Skagfirðingi Unnur Rós Ármannsdóttir, Háfeti Íslensku keppendurnir fá leigðan hest á meðan á mótinu stendur og hópnum fylgir Dagbjört Hulda Guðbjörnsdóttir formaður Æskulýðsnefndar LH. Undirbúningur ferðarinnar er í fullum gangi og mikil tilhlökkun í hópnum.
16. júní 2026
Pistill frá formanni LH
10. júní 2026
Lágmörk inn á Íslandsmót lækkuð
1. júní 2026
Skógarhólar hinn geysivinsæli áningarstaður hestamanna í þjóðgarðinum á Þingvöllum hefur fengið góða andlitslyftingu á síðustu misserum.
Lesa meira