Tilkynning frá stjórn LH um þátttökurétt á Fjórðungsmóti Vesturlands

27. júní 2025

Tilkynning frá stjórn LH um þátttökurétt á Fjórðungsmóti Vesturlands

Stjórn Landssambands hestamannafélaga, að fengnu áliti keppnisnefndar, hefur fallist á beiðni framkvæmdanefndar Fjórðungsmóts Vesturlands um að veita undanþágu frá gr. 5 í reglugerð um Landsmót og fjórðungsmót um val hrossa og keppenda á fjórðungsmót, sem snýr að vali keppenda á mótið í barna- og unglingaflokki.


Hestamannafélög sem eiga aðild að Fjórðungsmóti Vesturlands 2025 er veitt heimild til að velja sína fulltrúa á mótið úr hópi knapa í barna- og unglingaflokki sem skráðir voru til úrtöku hjá félögunum.

Undanþágan nær aðeins til barna- og unglingaflokks.


Þetta er gert til þess að félögin geti fyllt sinn kvóta í barna- og unglingaflokki óháð því hvort knapinn hafi gert ólöglega sýningu eða annað komið upp á sem varð til þess að knapanum hafi verið meinuð þátttaka á mótinu.


Stjórn vill undirstrika að undanþága þessi nær aðeins til knapa í barna- og unglingaflokki og er ætlað að auka þátttöku barna- og unglinga í gæðingakeppni og ýta undir útbreiðslu gæðingakeppni og nýliðun í greininni.

Undanþágan er ekki fordæmisgefandi og mun stjórn ekki taka til umfjöllunar frekari beiðnir um undanþágur frá reglugerð um Landsmót og fjórðungsmót. 

Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Lesa meira