Framtíðarsýnin er skýr

22. október 2025

Viðtal við nýjan formann Landsliðsnefndar um afreks- og landsliðsmál

Við hittum Sigurbjörn Eiríksson, nýjan formann landsliðsnefndar, og okkur lék forvitni á að vita hvernig fyrstu vikur hans í starfi hefðu gengið fyrir sig.


Hvað er að gerast í afreks- og landsliðsmálum í LH um þessar mundir?

Núna í haust stóðum við frammi fyrir því að samningar við þjálfara landsliðanna voru lausir. Það skapaði ákveðin tímamót þar sem við gátum horft á stöðuna í heild sinni og ákveðið að gefa okkur svigrúm til að endurskipuleggja bæði afreks- og landsliðsmálin frá grunni. 

Ákveðið var að stofna sérstakan vinnuhóp sem starfar við hlið Landsliðsnefndar og hefur það hlutverk að fara í heildarskoðun á allri uppbyggingu, skipulagi og verklagi innan afreksstarfsins. Það er alveg ljóst að vel hefur verið unnið að þessum málum hingað til, en það er þó alltaf hollt að staldra örlítið við, fara ofan í saumana og skoða hvort að frekari tækifæri séu til að gera hlutina enn betur eða öðruvísi. 


Hvernig hefur vinnunni miðað? 

Vinnunni miðar vel, það er í mörg horn að líta og fjölmargar spurningar hafa komið upp í ferlinu. En framtíðarsýnin er skýr - við stefnum á áframhaldandi uppbyggingu og ná framúrskarandi árangri. Við erum að skoða öll afreksmálin í heild sinni, þá starfið í kring um Hæfileikamótun, U21-landsliðið og A-landsliðið. Það hafa komið upp spurningar hvort árangursríkara sé að fleiri aðilar komi að vali landsliðshóps, hvort fleiri en einn þjálfari þjálfi landsliðið eða hvort þjálfun beggja landsliðanna skuli vera á höndum eins þjálfara. Þetta eru aðeins nokkur dæmi af þeim atriðum sem við erum að vinna að, og þessi vinna heldur áfram á næstu dögum.


Hvenær má búast við að vinnuhópurinn ljúki störfum og niðurstöður liggi fyrir?

Þessi vinna þarf að ganga hratt en jafnframt vera fagleg og vel ígrunduð. Það er mikilvægt að starf landsliðanna hefjist sem fyrst. Við stefnum að því að ljúka þessari greiningarvinnu á næstu dögum og leggja fram niðurstöður fyrir Landsliðsnefnd og stjórn LH. 


En hver er nýr formaður Landsliðsnefndar?

Ég heiti Sigurbjörn Eiríksson (Sibbi) og starfa sem framkvæmdastjóri á Innviðasviði Sýnar, ég hef áralanga reynslu af stjórnendastörfum úr atvinnulífinu, hef setið í ýmsum stjórnum tengdri minni vinnu sl. 20 árin. Ég hef gaman af að vinna með fólki, taka að mér krefjandi verkefni, góð samvinna og árangur hvetja mig áfram og veit ekkert skemmtilegra en takast á við áskoranir og ná settum markmiðum.

Hef mjög gaman af öllu sem kemur að hestamennsku, keppni, daglegum útreiðum, hestaferðum og hrossarækt. Það sem mér finnst vera sérstaklega heillandi við hestamennskuna eru að þar eru engin landamæri vegna aldurs, kyns, stétt né stöðu, hestamennska er áhugamál þar sem að margar kynslóðir geta átt góða daga saman. 


Ég sinnti formennsku í Meistaradeild í hestaíþróttum frá haustinu 2020 - 2023, það var mikill og góður skóli, þar fékk ég góða innsýn inn í félagstörf tengdum hestum, kynntist þar frábærum samstarfsaðilum í stjórn, metnaðarfullum knöpum og öflugum liðseigendum. Það má segja að á þessum árum í Meistaradeild að þá hafi ég áttað mig á því að það má alltaf láta gott af sér leiða, svo lengi sem að maður er tilbúinn að leggja sig allan fram. Ég hef setið í stjórn Spretts síðan vorið 2024, verið í varastjórn LH síðan haustið 2024 og setið í nefndum á vegum LH, þar á meðal Landsliðsnefnd. Núna í september tók ég svo við formennsku í Landsliðsnefnd af Kristni Skúlasyni.


Eitthvað að lokum? 
Mér finnst algjör forréttindi að fá að taka þátt í þessu starfi og vinna með fólki sem brennur fyrir hestamennsku. Það er lykilatriði að hafa skýra stefnu í afreksmálum og tryggja að Ísland haldi áfram að vera leiðandi í hestaíþróttum á heimsvísu.


Við þökkum Sibba fyrir spjallið og óskum honum velfarnaðar í starfi formanns landsliðsnefndar.


Fréttasafn

17. september 2026
Hæfileikamótun LH er fyrir unglinga fædd 2010-2013
16. september 2026
Vigdís Matthíasdóttir er nýr yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH
14. september 2026
Íslandsmót og Áhugamannamót eru auglýst til umsóknar
11. september 2026
Landssamband hestamannafélaga kynnir ritið Reiðvegir Íslands – Saga reiðleiða og reiðvega frá landnámi til nútíma. Frá hófförum í klöpp til stafrænnar kortasjár , eftir Halldór H. Halldórsson sem nú er aðgengilegt á vef LH undir flipanum almenningsíþróttin - reiðvegamál. Um aldir lágu leiðir milli byggða um heiðar, dali og hálendi, mótaðar af ferðum kynslóðanna. Hesturinn var helsta samgöngutæki landsmanna og reiðleiðirnar lífæð samgangna; þær tengdu fólk og byggðir, auðvelduðu samskipti og urðu með tímanum hluti af sögu og menningararfi þjóðarinnar. Í Reiðvegum Íslands er saga þessara leiða rakin frá landnámi til samtímans. Fjallað er meðal annars um fornar þjóðleiðir, leiðir til Þingvalla, landpósta og þróun samgangna, auk helstu hálendisleiða um Kjöl, Sprengisand og Arnarvatnsheiði. Einnig er fjallað um Hellisheiði og Kolviðarhól og þær miklu breytingar sem urðu á samgöngum þegar bíllinn tók við af hestinum sem helsta samgöngutæki þjóðarinnar. Sagan er þó ekki aðeins rakin aftur í tímann. Ritið fjallar jafnframt um þróun reiðvegagerðar á síðari áratugum, skipulags- og fjármögnunarmál, skráningu reiðleiða og tilurð Kortasjár Landssambands hestamannafélaga. Þannig er leitast við að tengja saman sögu gömlu þjóðleiðanna og það reiðvegakerfi sem hestamenn landsins byggja á í dag. Bókin byggir á áratuga vinnu höfundar við málefni reiðvega og samgangna innan hestamennskunnar, auk umfangsmikillar söfnunar heimilda, korta, ljósmynda og annarra gagna. Markmiðið er að varðveita sögu reiðleiðanna en um leið draga fram mikilvægi reiðvega sem hluta af samgönguinnviðum landsins, menningararfi þess og þeirri lifandi hefð sem íslensk hestamennska byggir á. Um höfundinn Halldór H. Halldórsson hefur um áratugaskeið unnið að reiðvega- og samgöngumálum hestamanna. Hann sat í stjórn Landsmóts hestamanna árið 2000 og í varastjórn Landssambands hestamannafélaga 2002–2006. Hann tók sæti í Ferða- og samgöngunefnd LH árið 2002 og var formaður nefndarinnar frá 2006 til 2020. Auk þess hefur Halldór komið að reiðvegamálum á vettvangi hestamannafélaga og tekið virkan þátt í uppbyggingu, skráningu og stefnumótun reiðleiða og reiðvega. Sú reynsla, ásamt áratuga söfnun heimilda um samgöngusögu ríðandi fólks, myndar grunninn að Reiðvegum Íslands. Með útgáfu ritsins er þessi saga tekin saman og gerð aðgengileg hestamönnum og öðrum þeim sem áhuga hafa á samgöngusögu Íslands, íslenska hestinum og þeim leiðum sem tengt hafa byggðir landsins saman frá fyrstu tíð. 
11. september 2026
Á nýlega afstöðnu Norðurlandamóti íslenska hestsins í Svíþjóð komu upp veikindi í þremur hrossum danska landsliðsins. Þær sorglegu fréttir bárust í vikunni að einn af þeim hestum sem veiktust á mótinu sé nú fallinn. Á alþjóðlegum mótum sem þessu eru hross frá hverju landi hýst aðskilin og líkamshiti allra hrossa mældur tvisvar á dag. Þetta verklag varð til þess að veikindin uppgötvuðust snemma og veikindin virðist hafa haldist innan afmarkaðs hóps. Sýnataka fór strax af stað til að útiloka alvarlega smitsjúkdómavalda eins og EHV-1 og EIV (hestainflúensu) og anaplasmósu, sem er bakteríusjúkdómur sem berst með skógarmítlum og einkennist meðal annars af háum hita. Niðurstöður rannsókna voru neikvæðar fyrir þessa sjúkdóma og einnig fyrir svokallaða hitasótt sem við þekkjum hér á landi síðan 1998 (eCov). Einnig var skoðað hvort veikindin væru tengd fóðri. Tekin voru sýni úr heyi sem hestarnir sem veiktust fengu og niðurstöður þeirrar rannsóknar benda sterklega til að myglusvepp í heyinu sé um að kenna. Ekki er vitað til þess að fleiri hross hafi veikst síðan að mótinu lauk en knapar hafa verið beðnir um að fylgjast vel með heilsu sinna hesta á næstu vikum. Allir knapar íslenska landsliðsins voru vel upplýstir um stöðu mála á mótinu og hvaða smitvarnarráðstöfunum ætti að fylgja við heimkomu. Íslenski hrossastofninn er einangraður og hefur því takmarkað ónæmi gegn mörgum þeim smitsjúkdómum sem finnast erlendis. Auk þess eru aðstæður hér á landi þannig að þéttleiki hrossa er mikill í stórum hesthúsahverfum og hross ferðast mikið á milli landshluta til dæmis á mótum, í stóðréttum, graðhestagirðingum og hestaferðum. Reynsla af fyrri faröldrum sýna að smit breiðist hratt út hér á landi og gæti reynst mjög erfitt að hefta útbreiðslu smitsjúkdóms þegar hann er kominn til landsins á annað borð. Ýtrustu kröfur eru í gildi hér á landi til að verjast smitsjúkdómum í dýrum. Innflutningur notaðra reiðtygja, reiðhanska, leður- og vaxfatnaðar er með öllu óheimill. Annan reiðfatnað má taka með sér hafi hann verið þveginn fyrir komu til landsins. Matvælastofnun og Landssamband hestamannafélaga benda öllum hestamönnum á að kynna sér leiðbeiningar á heimasíðu MAST og leiðbeina erlendum gestum og ferðamönnum á sínum vegum.
28. ágúst 2026
Við yfirferð úrslita frá Íslandsmóti barna og unglinga 2026 kom í ljós að ranglega var tilkynnt um stigahæsta knapa í unglingaflokki. Ástæðu þess má rekja til þýðingarvillu í íslenskri útgáfu keppnisreglna FEIF sem hafði áhrif á útreikning stiganna. Samkvæmt leiðréttum útreikningum er Kristín Eir Hauksdóttir Holaker stigahæsti knapi í unglingaflokki á Íslandsmóti 2026. Landssamband hestamannafélaga og mótshaldari Hestamannafélagið Sleipnir biðja hlutaðeigandi innilega velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.  Við óskum Kristínu Eir hjartanlega til hamingju með árangurinn.
27. ágúst 2026
Við þurfum að stækka hóp gæðingadómara!
21. ágúst 2026
Leitað er eftir metnaðarfullum reiðkennara sem hefur áhuga á að starfa með unglingum.
19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
Lesa meira