Kosning um FEIF-reiðkennara ársins

7. janúar 2026

Kosning um reiðkennara ársins 2025 fer nú fram á heimasíðu FEIF.

Hekla Katharína Kristinsdóttir var valinn reiðkennari ársins á Íslandi og er því okkar fulltrúi í kosningunni.


Tilnefndir eru: 

  • Frida Lindström (Svíþjóð)
  • Hekla Katharina Kristinsdóttir (Ísland)
  • Katariina Koskela (Finnland)
  • Michelle Goedhart (Holland)
  • Nicole Gerber (Swiss)
  • Pernille Wullf Harslund (Danmörk)


Kosning fer fram á vefsíðu FEIF og þar má finna frekari upplýsingar um tilnefnda.

Athugið að það þarf að skrá sig inn til þess að hægt sé að kjósa en það er einfalt og tekur það aðeins örstutta stund.


Fréttasafn

21. nóvember 2026
Á Uppskeruhátíð LH sem haldin var í Gamla bíó, voru krýndir bestu knapar ársins 2026 og keppnishestabú ársins valið. Knapi ársins er Jakob Svavar Sigurðsson Jakob Svavar átti stórkostlegt ár á keppnisbrautinni. Jakob Svavar sigraði B flokk á Landsmóti hestamanna á Kór frá Skálakoti með einkunnina 9,19. Þeir tilltu sér á toppinn eftir sérstaka forkeppni, sýndu mikið öryggi og voru á toppnum allt til enda. Jakob var jafnframt í 2. sæti í tölti á Landsmóti hestamanna á Skarpi frá Kýrholti og í 5. sæti í A flokki á Goða frá Bjarnarhöfn. Jakob Svavar er líka þrefaldur Íslandsmeistari. Hann sigraði tölt T1 á Skarpi frá Kýrholti með 9,61 í einkunn en þeir sigruðu einnig fjórgang með 8,20 í einkunn. Jakob sigraði slaktaumatölt T2 á Hrefnu frá Fákshólum með 8,88 í einkunn. Jakob Svavar Sigurðsson er knapi ársins 2026. Íþróttaknapi ársins er Á smundur Ernir Snorrason Ásmundur varð Landsmótssigurvegari í tölti á Hlökk frá Strandarhöfði þegar þau fóru í hæstu tölur sem gefnar hafa verið í tölti, 9,27 í forkeppni og 9,78 í úrslitum. Ásmundur er jafnframt samanlaðgður Íslandsmeistari í fjórgangsgreinum á Hlökk. Ásmundur og Hlökk eru efst á heimslista FEIF í tölti, fjórgangi og samanlögðum fjórgangsgreinum. Ásmundur var í þriðja sæti í fimmgangi á Íslandsmóti á Aski frá Holtsmúla auk þess sem þeir sigruðu sömu grein á Reykjavíkurmeistaramóti. Ásmundur Ernir Snorrason er íþróttaknapi ársins 2026. Gæðingaknapi ársins er Hans Þór Hilmarsson Hans Þór sigraði A flokk á Landsmóti hestamanna á eftirminnilegan hátt á Sindra frá Hjarðartúni með einkunina 9,13. Sýning þeirra einkenndist af fagmennsku og krafti og voru skeiðsprettir sýningarinnar sérstaklega eftirminnilegir. Hans Þór Hilmarsson er gæðingaknapi ársins 2026. Skeiðknapi ársins er Eyrún Ýr Pálsdóttir Eyrún vann 100 metra skeið á Landsmóti á hryssunni Friðsemd frá Kópavogi. Eyrún og Friðsemd unnu jafnframt 100 metra skeið á Íslandsmóti auk þess að hafa sigrað sömu grein á Reykjavíkurmeistaramóti. Eyrún og Friðsemd eiga besta tíma ársins í 100 metra skeiði, 7,30 sek. Eyrún Ýr Pálsdóttir er skeiðknapi ársins 2026. Efnilegasti knapi ársins er Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Guðmar átti einstakt keppnisár, hann varð tvöfaldur Landsmótssigurvegari þegar hann sigraði B flokk ungmenna á Gretti frá Hólum og A flokk ungmenna á Kalsa frá Þúfum. Hann er einnig þrefaldur Íslandsmeistari í fjórgangi og tölti ungmenna á Gretti og í fimmgangi ungmenna á Kalsa frá Þúfum. Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal er efnilegasti knapi ársins 2026. Keppnishestabú ársins er Garðshorn á Þelamörk Garðshorn á Þelamörk hefur um árabil ræktað hross í fremstu röð. Frá búinu kemur einn afkastameski skeiðhestur samtímans, Kastor frá Garðshorni á Þelamörk. Kastor sigraði 250m skeið á Landsmóti hestamanna auk þess sem hann var í 4. sæti í A flokki gæðinga á sama móti. Adrían frá Garðshorni á Þelamörk er fasmikill og mjúkur klárhestur sem endaði annar í B flokki á Landsmóti hestamanna. Garðshorn á Þelamörk er keppnishestabú ársins 2026 . Að valinu stendur valnefnd LH sem er skipuðuð fjölbreyttum hópi og þar eiga fulltrúa stjórn LH, GDLH, HÍDÍ, FT og fjölmiðlar. Við val á knöpum ársins skal tekið tillit til árangurs á árinu: ástundunar, prúðmennsku og íþróttamannlegrar framkomu innan vallar sem utan. Knapi ársins í hverjum flokki er valinn sá sem talinn er hafa náð framúrskarandi árangri á sviði reiðmennsku og frammistaða hans sé álitin hestaíþróttinni til framdráttar, hvort sem um er að ræða eitt afgerandi afrek, eða frábæran árangur í mörgum greinum á mörgum mótum. Við val þeirra sem viðurkenningar hljóta skal gaumgæfa árangur jafnt hér heima sem erlendis (WR mót og stórmót).
20. nóvember 2026
Matthias Rettig dýralæknir verður hluti af landsliðsteymi LH fram yfir næstu þrjú Heimsmeistaramót
16. nóvember 2026
Styttist í uppskeruhátíð
13. nóvember 2026
Hestamannafélagið Sleipnir mun halda Íslandsmót fullorðinna og ungmenna 16.-20. júní 2027
11. nóvember 2026
Allir í Samskipahöllina annað kvöld
10. nóvember 2026
Knapar ársins verða heiðraðir á Uppskeruhátíð hestafólks
6. nóvember 2026
Heiðursviðurkenningar ÍSÍ veittar á Landsþingi LH
5. nóvember 2026
Gullmerki veitt á Landsþingi
3. nóvember 2026
Könnun til félagsmanna
2. nóvember 2026
Að loknu hverju landsþingi skipar stjórn Landssambands hestamannafélaga í nefndir sambandsins til tveggja ára. Nefndarstörf eru undirstaðan í öllu starfi LH og mikilvægt að fá öfluga sjálfboðaliða sem eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum. Nefndastarf á vegum LH er skemmtilegt og fræðandi, auk þess sem störf í nefndum eru gefandi og til þess fallin að efla tengslanet nefndafólks. Ef þú ert tilbúin/n til að starfa í nefnd hjá LH þá sækir þú um á sértöku umsóknareyðublaði . Frestur til að gefa kost á sér í nefndastörf LH er 20. nóvember. Nefndirnar sem um ræðir eru: Keppnisnefnd Keppnisnefnd fjallar um mál sem stjórn LH vísar til hennar en hefur að öðru leyti frumkvæðisrétt að málefnum sem undir hana heyra. Hlutverk nefndarinnar er að bæta reglur er viðkoma keppni í hestamennsku, þannig að þær séu einfaldar, skiljanlegar og skýrar. Laganefnd Hlutverk nefndarinnar er að að bæta regluverk LH, þannig að það sé einfalt, skiljanlegt og skýrt og vera stjórn til ráðgjafar er varðar túlkun á lögum og reglum LH. Nefndin sér einnig um að breytingar á lögum og reglum sem samþykktar eru á FEIF-þingi og landsþingi LH séu rétt færð inn í lög og reglur LH og fara yfir tillögur til landsþings. Landsliðs- og afreksnefnd Hlutverk landsliðs- og afreksnefndar er að móta umgjörð um afreksmál LH og halda utan um landsliðshópa og hæfileikamótun LH. Nefndin er einnig fjáröflunarnefnd fyrir afreksstarf LH. Nefndin skipuleggur landsliðsferðir og fylgir eftir landsliðum Íslands í hestaíþróttum á HM og NM. Mannvirkjanefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera ráðgefandi varðandi gerð og notkun mannvirkja á hestaíþróttasvæðum hestamannafélaganna. Einnig ber nefndinni að vera stjórn innan handar varðandi lágmarkskröfur sem gerðar eru til mótshaldara Íslandsmóta og Landsmóta hvað varðar aðstæður á mótssvæði. Menntanefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera sérfræðilegur ráðunautur sambandsstjórnar LH í öllum málefnum er varða fræðslu og menntun. Nefndin heldur utan um endurmenntunarnámskeið fyrir reiðkennara og staðfestir virka reiðkennara til FEIF. Annað hvert ár stendur nefndin fyrir endurmenntunarráðstefnu. Tölvunefnd Hlutverk nefndarinnar er að tryggja aðgengi aðildarfélaga LH að framúrskarandi forriti sem reiknar út niðurstöður móta og birtir niðurstöður á aðgengilegan hátt. Nefndin stuðlar að þróun mótaforrits í samræmi við kröfur samtímans. Úrskurðar- og aganefnd Úrskurðar- og aganefnd LH skal skipuð þremur aðalmönnum og tveimur til vara, formaður skal vera löglærður. Úrskurðar- og aganefnd úrskurðar um brot á lögum, reglugerðum og reglum LH og ákvarðar viðurlög, í samræmi við reglur Úrskurðar- og aganefndar. Æskulýðsnefnd Hlutverk Æskulýðsnefndar er að efla fræðslu um æskulýðsmál, gæta hagsmuna og jafnræðis æskunnar í íþróttinni, auka fræðslu æskulýðsfulltrúa um allt land og styðja við þá í starfi. Nefndin sér einnig um val þátttakenda á FEIF Youth Cup og Youth Camp. Útbreiðslu- og nýliðunarnefnd Hlutverk nefndarinnar er að vinna að útbreiðslu og kynningu á hestaíþróttum og stuðla að jákvæðri ímynd hestaíþrótta. Nefndinni er einnig ætlað að vinna að aukinni útbreiðslu og umfjöllun um hestaíþróttir. Öryggisnefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera vakandi yfir því sem varðar öryggi hestafólks hvort sem er í búnaði hestafólks eða umhverfi hestaíþrótta. Nefndin stuðlar að öryggi á reiðvegum og annars staðar þar sem hestamennska er stunduð og sér um að fræða hinn almenna hestamann um hvernig hægt er að bæta öryggi í nærumhverfi. Ef þú ert tilbúin til að starfa í nefnd hjá LH þá sækir þú um með því að smella hér .
Lesa meira