Nýr landsliðsþjálfari U21-landsliðsins í hestaíþróttum

30. desember 2025

Sigvaldi Lárus Guðmundsson hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari U21-landsliðs Íslands í hestaíþróttum







Sigvaldi Lárus Guðmundsson hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari U21-landsliðs Íslands í hestaíþróttum. Sigvaldi hefur starfað fyrir LH sl. 7 ár, fyrst sem einn af þjálfurum í Hæfileikamótun og síðar sem yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH við frábæran orðstír fyrir gott utanumhald og eftirfylgni við unga afreksknapa.


Sigvaldi hefur stundað hestamennsku, tamningar og kennslu frá unga aldri og útskrifaðist með hæstu einkunn frá Háskólanum á Hólum. Hann starfaði sem kennari við Hólaskóla í 2 ár, við kennslu í Reiðmanninum hjá Landbúnaðarháskóla Íslands í 5 ár og hefur komið að æskulýðs- og keppnisstarfi í mörgum hestamannafélögum víðs vegar um landið. Sigvaldi var landsliðsþjálfari Bandaríkjanna á HM í Hollandi 2023 og þjálfari hjá landsliðsknapa í sama liði árið 2025.


Sigvaldi mun áfram gegna starfi yfirþjálfara Hæfileikamótunar fram til vors en þá mun verða leitað eftir nýjum yfirþjálfara í starfið.


Sigvaldi er boðinn velkominn til starfa sem U21 landsliðsþjálfari og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs.

Fréttasafn

4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
23. júní 2026
Ingimar Sveinsson, heiðursfélagi og gullmerkishafi Landssambands hestamannafélaga er látinn, 98 ára að aldri. Ingimar var hestamaður, bóndi, kennari og frumkvöðull í hestvænum tamningaraðferðum hérlendis. Ingimar fæddist 27. febrúar 1928 á Egilsstöðum á Fljótsdalshéraði og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Sveinn Jónsson, bóndi og oddviti á Egilsstöðum, og Sigríður Fanney Jónsdóttir, húsfreyja og hótelhaldari á Egilsstöðum. Ingimar lauk stúdentsprófi frá MA 1948, BSc.-prófi í búvísindum frá Washington State University, Pullman í Washington-ríki í Bandaríkjunum 1952, dvaldi við nám í Danmörku sumarið 1986, í Þýskalandi 1993 og í Kanada og Bandaríkjunum 1995. Ingimar var bóndi á Egilsstöðum (á Egilsstaðabúinu) 1952-86 en gerðist kennari við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, m.a. í hrossarækt og tamningum, frá ársbyrjun 1986 til vors 1998. Jafnframt stundaði hann þar tilraunir og rannsóknir í hrossarækt. Hann kynnti sér ýmsar erlendar tamningaaðferðir hrossa, sem hann aðlagaði fyrir íslenska hestinn. Ingimar hélt fjölda tamninganámskeiða um allt land og víða erlendis, auk þess að flytja erindi og halda fræðslunámskeið um íslenska hestinn. Ingimar var stofnfélagi Hestamannafélagsins Freyfaxa á Fljótsdalshéraði og sat í stjórn þess í 25 ár, þar af formaður í fimm ár. Hann var stofnfélagi og fyrsti formaður ungmenna- og íþróttafélagsins Hattar á Egilsstöðum. Sat í stjórn Kaupfélags Héraðsbúa, var í nokkur ár formaður Bændafélags Fljótsdalshéraðs, og í stjórn Ræktunarsambands Austur-Héraðs og formaður og framkvæmdastjóri þess um skeið. Ingimar skrifaði fjölda greina í blöð og tímarit og kennslubækur í hrossarækt. Ritaði einnig bókina Hrossafræði Ingimars, sem var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Hagþenkis árið 2010. Landssamband hestamannafélaga vottar fjölskyldu og vinum Ingimars samúð.
22. júní 2026
Skráning opin til miðnættis 23.júní
Lesa meira