Skagfirðingur hlaut æskulýðsbikarinn

9. nóvember 2025

Gott æskulýðsstarf er grunnurinn að framtíð hestamennskunnar

Hinn eftirsótti Æskulýðsbikar Landsambands hestamannafélaga var afhentur á formannafundi LH þann 8. nóv. sl. Bikarinn er árlega veittur því félagi sem þykir hafa skarað fram úr í æskulýðsstarfi á liðnu ári. Valið byggir á innsendum æskulýðsnefndaskýrslum og er það æskulýðsnefnd LH sem hefur það verkefni að velja handhafa bikarsins. Bikarinn hefur verið afhentur frá árinu 1996 og er ein æðsta viðurkenning sem félögum geta hlotnast fyrir æskulýðsstarf sitt.


Gott æskulýðsstarf er grunnurinn að framtíð hestamennskunnar – því unga kynslóðin er framtíð greinarinnar.

Í ár bárust þrettán vandaðar og metnaðarfullar skýrslur. Það er alltaf ánægjulegt að sjá hversu fjölbreytt og öflugt starf fer fram hjá félögunum um allt land.


Félögin leggja áherslu á æfingar og námskeið, félagslíf og þátttöku barna – bæði með og án hesta.

Sérstakt ánægjuefni er að sjá fjölgun félagshesthúsa sem gera fleiri börnum kleift að njóta hestamennskunnar – jafnvel þó þau hafi ekki eigið bakland í greininni.


Sama má segja um vaxandi áhuga félaganna á hestafimleikum sem gefa börnum tækifæri til að kynnast hestinum á sínum forsendum og hestafimleikar krefjast jafnframt fárra hesta. Framtíð hestafimleika er björt en fyrsta hestafimleikamótið fór fram í sumar að frumkvæði Hestamannafélagsins Þyts sem hefur áralanga reynslu af þessari grein. Einnig er ánægjulegt að sjá fleiri félög bjóða upp á heilsvetrardagskrá og sýningar þar sem æskan fær að njóta sín og sýna það sem hún hefur lært.


Það er ávallt vandasamt verkefni að velja handhafa bikarsins. Tekið er mið af stærð félagsins, fjölbreytileika starfsins og því bolmagni sem raunverulega liggur að baki.


Hestamannafélagið Skagfirðingur í Skagafirði hlýtur Æskulýðsbikar LH 2025.


Skagfirðingur hefur sýnt mikinn metnað, frumkvæði og elju í starfi sínu. Félagið stendur fyrir fjölmörgum viðburðum allan veturinn og fram á sumar, býður upp á getuskipt námskeið fyrir börn allt niður í tveggja ára aldur og leggur áherslu á að öll börn fái að blómstra – hvort sem þau eru nýliðar, áhugaknapar eða keppnisknapar. Félagið stendur fyrir glæsilegri æskulýðssýningu, þar sem ungir knapar fá að sýna sig og hestinn sinn, og halda uppskeruhátíð fyrir æsku félagsins. Þau eru einnig dugleg til fjáröflunar, því slíkt starf kostar bæði tíma, elju og útsjónarsemi.


Félagstarf Skagfirðings einkennist af jákvæðni, samstöðu og sterkri framtíðarsýn. Sérstaklega vakti athygli frumleg lausn félagsins á félagshesthúsi þar sem börnin fengu að kynnast í verki þeirri ábyrgð sem fylgir því að halda hesta – og sjá til þess að þeim líði vel. Félagið telur rúmlega 600 félagsmenn og byggist á sterkum grunni eldri félaga sem sameinuðust árið 2016.


Eygló Gunnlaugsdóttir, formaður æskulýðsdeildar Skagfirðings og Unnur Rún Sigurpálsdóttir yfirþjálfari Skagfirðings veittu bikarnum móttöku úr hendi formanns æskulýðsnefndar LH, Dagbjörtu Huldu Guðbjörnsdóttur, með þeim á myndinni er formaður LH Linda Björk Gunnlaugsdóttir. Skagfirðingur sendi inn vandaða 17 blaðsíðna skýrslu sem lýsir vel metnaðinum sem er í æskulýðsstarfinu hjá félaginu.


Til hamingju Skagfirðingar!



Fréttasafn

17. september 2026
Hæfileikamótun LH er fyrir unglinga fædd 2010-2013
16. september 2026
Vigdís Matthíasdóttir er nýr yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH
14. september 2026
Íslandsmót og Áhugamannamót eru auglýst til umsóknar
11. september 2026
Landssamband hestamannafélaga kynnir ritið Reiðvegir Íslands – Saga reiðleiða og reiðvega frá landnámi til nútíma. Frá hófförum í klöpp til stafrænnar kortasjár , eftir Halldór H. Halldórsson sem nú er aðgengilegt á vef LH undir flipanum almenningsíþróttin - reiðvegamál. Um aldir lágu leiðir milli byggða um heiðar, dali og hálendi, mótaðar af ferðum kynslóðanna. Hesturinn var helsta samgöngutæki landsmanna og reiðleiðirnar lífæð samgangna; þær tengdu fólk og byggðir, auðvelduðu samskipti og urðu með tímanum hluti af sögu og menningararfi þjóðarinnar. Í Reiðvegum Íslands er saga þessara leiða rakin frá landnámi til samtímans. Fjallað er meðal annars um fornar þjóðleiðir, leiðir til Þingvalla, landpósta og þróun samgangna, auk helstu hálendisleiða um Kjöl, Sprengisand og Arnarvatnsheiði. Einnig er fjallað um Hellisheiði og Kolviðarhól og þær miklu breytingar sem urðu á samgöngum þegar bíllinn tók við af hestinum sem helsta samgöngutæki þjóðarinnar. Sagan er þó ekki aðeins rakin aftur í tímann. Ritið fjallar jafnframt um þróun reiðvegagerðar á síðari áratugum, skipulags- og fjármögnunarmál, skráningu reiðleiða og tilurð Kortasjár Landssambands hestamannafélaga. Þannig er leitast við að tengja saman sögu gömlu þjóðleiðanna og það reiðvegakerfi sem hestamenn landsins byggja á í dag. Bókin byggir á áratuga vinnu höfundar við málefni reiðvega og samgangna innan hestamennskunnar, auk umfangsmikillar söfnunar heimilda, korta, ljósmynda og annarra gagna. Markmiðið er að varðveita sögu reiðleiðanna en um leið draga fram mikilvægi reiðvega sem hluta af samgönguinnviðum landsins, menningararfi þess og þeirri lifandi hefð sem íslensk hestamennska byggir á. Um höfundinn Halldór H. Halldórsson hefur um áratugaskeið unnið að reiðvega- og samgöngumálum hestamanna. Hann sat í stjórn Landsmóts hestamanna árið 2000 og í varastjórn Landssambands hestamannafélaga 2002–2006. Hann tók sæti í Ferða- og samgöngunefnd LH árið 2002 og var formaður nefndarinnar frá 2006 til 2020. Auk þess hefur Halldór komið að reiðvegamálum á vettvangi hestamannafélaga og tekið virkan þátt í uppbyggingu, skráningu og stefnumótun reiðleiða og reiðvega. Sú reynsla, ásamt áratuga söfnun heimilda um samgöngusögu ríðandi fólks, myndar grunninn að Reiðvegum Íslands. Með útgáfu ritsins er þessi saga tekin saman og gerð aðgengileg hestamönnum og öðrum þeim sem áhuga hafa á samgöngusögu Íslands, íslenska hestinum og þeim leiðum sem tengt hafa byggðir landsins saman frá fyrstu tíð. 
11. september 2026
Á nýlega afstöðnu Norðurlandamóti íslenska hestsins í Svíþjóð komu upp veikindi í þremur hrossum danska landsliðsins. Þær sorglegu fréttir bárust í vikunni að einn af þeim hestum sem veiktust á mótinu sé nú fallinn. Á alþjóðlegum mótum sem þessu eru hross frá hverju landi hýst aðskilin og líkamshiti allra hrossa mældur tvisvar á dag. Þetta verklag varð til þess að veikindin uppgötvuðust snemma og veikindin virðist hafa haldist innan afmarkaðs hóps. Sýnataka fór strax af stað til að útiloka alvarlega smitsjúkdómavalda eins og EHV-1 og EIV (hestainflúensu) og anaplasmósu, sem er bakteríusjúkdómur sem berst með skógarmítlum og einkennist meðal annars af háum hita. Niðurstöður rannsókna voru neikvæðar fyrir þessa sjúkdóma og einnig fyrir svokallaða hitasótt sem við þekkjum hér á landi síðan 1998 (eCov). Einnig var skoðað hvort veikindin væru tengd fóðri. Tekin voru sýni úr heyi sem hestarnir sem veiktust fengu og niðurstöður þeirrar rannsóknar benda sterklega til að myglusvepp í heyinu sé um að kenna. Ekki er vitað til þess að fleiri hross hafi veikst síðan að mótinu lauk en knapar hafa verið beðnir um að fylgjast vel með heilsu sinna hesta á næstu vikum. Allir knapar íslenska landsliðsins voru vel upplýstir um stöðu mála á mótinu og hvaða smitvarnarráðstöfunum ætti að fylgja við heimkomu. Íslenski hrossastofninn er einangraður og hefur því takmarkað ónæmi gegn mörgum þeim smitsjúkdómum sem finnast erlendis. Auk þess eru aðstæður hér á landi þannig að þéttleiki hrossa er mikill í stórum hesthúsahverfum og hross ferðast mikið á milli landshluta til dæmis á mótum, í stóðréttum, graðhestagirðingum og hestaferðum. Reynsla af fyrri faröldrum sýna að smit breiðist hratt út hér á landi og gæti reynst mjög erfitt að hefta útbreiðslu smitsjúkdóms þegar hann er kominn til landsins á annað borð. Ýtrustu kröfur eru í gildi hér á landi til að verjast smitsjúkdómum í dýrum. Innflutningur notaðra reiðtygja, reiðhanska, leður- og vaxfatnaðar er með öllu óheimill. Annan reiðfatnað má taka með sér hafi hann verið þveginn fyrir komu til landsins. Matvælastofnun og Landssamband hestamannafélaga benda öllum hestamönnum á að kynna sér leiðbeiningar á heimasíðu MAST og leiðbeina erlendum gestum og ferðamönnum á sínum vegum.
28. ágúst 2026
Við yfirferð úrslita frá Íslandsmóti barna og unglinga 2026 kom í ljós að ranglega var tilkynnt um stigahæsta knapa í unglingaflokki. Ástæðu þess má rekja til þýðingarvillu í íslenskri útgáfu keppnisreglna FEIF sem hafði áhrif á útreikning stiganna. Samkvæmt leiðréttum útreikningum er Kristín Eir Hauksdóttir Holaker stigahæsti knapi í unglingaflokki á Íslandsmóti 2026. Landssamband hestamannafélaga og mótshaldari Hestamannafélagið Sleipnir biðja hlutaðeigandi innilega velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.  Við óskum Kristínu Eir hjartanlega til hamingju með árangurinn.
27. ágúst 2026
Við þurfum að stækka hóp gæðingadómara!
21. ágúst 2026
Leitað er eftir metnaðarfullum reiðkennara sem hefur áhuga á að starfa með unglingum.
19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
Lesa meira